Seðlabankastjóri: Aflandskrónuútboðið er handan við hornið

Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri sagði á kynn­ing­ar­fundi stýri­vaxta­á­kvörð­unar í dag að útboð aflandskróna sé handan við hornið. Það verði ekki í októ­ber, en áður höfðu haust­mán­uð­irnir októ­ber eða nóv­em­ber verið nefndir lík­legar tíma­setn­ingar, en eins og staðan sé núna þá verði útboðið haldið rétt fyrir eða eftir ára­mót. Már sagði að mikil vinna hafi átt sér stað við und­ir­bún­ing, meðal ann­ars í sam­ráði við erlenda ráð­gjafa. „Ég held þeir séu í bank­anum í dag,“ sagði Már á fund­inum.

Útboð aflandskróna er einn stórra þátta í áætlun stjórn­valda um losun fjár­magns­hafta. Áætlunin var kynnt í júní síð­ast­liðnum. Már sagði raun­veru­leik­ann oft reyn­ast flókn­ari en áætl­anir geri ráð fyrir og því geti hann ekki gefið nákvæm­ari dag­setn­ingu útboðs­ins.


Annar stór þáttur í los­un­ar­á­ætlun stjórn­valda er upp­gjör slita­bú­anna. Báðir þættir munu hafa mikil áhrif á hag­stærðir í banka- og efna­hags­kerf­inu, þar á meðal lausa­fjár­stöðu bank­anna. Á fund­inum í morgun sagði Már það skyn­sam­legt að láta þessa tvo við­burði ekki ger­ast sam­tímis. „Þótt við getum reiknað út áhrif aðgerð­anna á kerfið í heild þá er ekki alveg ljóst hvernig það fellur á ein­stakar stofn­anir. Það geta verið rök fyrir því að hafa meira bil á milli þerra,“ sagði Már og tók fram að á næstu vikum muni bank­arnir vita nánar hver áhrif aðger­anna verða. Gefa verði bönk­unum svig­rúm til að und­ir­búa sig. „Það er mik­il­vægt að þetta verði eins lítið högg og hægt er. Við vitum að báðar aðgerðir eru hag­stæðar fyrir þjóð­ar­búið en það þarf að huga að áhrifum á starf­andi banka.“


Einn liður í und­ir­bún­ingi fyrir þessar aðgerðir, þ.e. aflandskrón­u­út­boð og upp­gjör slita­bú­anna, er hækkun bindi­skyldu úr tveimur pró­sentum í fjögur pró­sent. Pen­inga­stefnu­nefnd til­kynnti um hækkun bindi­skyld­unnar í morgun, þegar hún til­kynnti um óbreytta stýri­vexti.


Á fund­inum sagði Már að breyt­ing á bindi­skyldu væri tíma­bundin aðgerð hluti af los­un­ar­á­ætl­un­inni. Breyt­ingin væri ekki gerð til að auka aðhald pen­inga­stefn­unnar, þótt áhrif hækk­un­ar­innar liggi ekki nákvæm­lega fyrir hvað það varðar. „Við getum ekki verið viss um að áhrifin séu hlut­laus, en þau ættu í öllu falli ekki að vera mikil,“ sagði Már.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár