Fyrrverandi biskup ver samviskufrelsi presta

Mikil umræða hefur verið und­an­farið um svo­kallað sam­visku­frelsi presta, frelsi þeirra til að neita að gefa saman sam­kyn­hneigð pör. Kristján Valur Ing­ólfs­son, starf­andi biskup og vígslu­biskup í Skál­holti, hefur sagt að sam­visku­frelsi sé stjórn­ar­skrár­var­inn réttur og meðal dýr­mæt­ustu mann­rétt­inda. Þessu eru margir ósam­mála, meðal ann­ars prestar og Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra, sem segir að prestar geti ekki neitað sam­kyn­hneigðum pörum um hjóna­vígslu á þessum grund­velli.

Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, hefur ekki tjáð sig um málið und­an­farið, en áður hefur komið fram að hún vilji að prestar geti neitað að gifta pör af sama kyni.

Forveri hennar, Karl Sig­ur­björns­son, fyrr­ver­andi biskup, hefur hins vegar tjáð sig um þessi mál á Facebook. Það gerir hann í kald­hæðnu svari við færslu rit­höf­und­ar­ins Guð­mundar Andra Thors­sonar, sem gagn­rýnir orða­lagið sam­visku­frelsi. „Að kenna svona for­pokun við sam­visku, slíka neitun við frelsi, er van­brúkun á tungu­mál­inu,“ segir Guð­mundur Andri.

"Já, sam­visku­frelsi manna hefur auð­vitað alltaf verið til óþurftar og truflað and­lega og ver­ald­lega vald­hafa á hverjum tíma sem hafa fundið sig knúna til að taka þau af sem hafa haft ein­hverjar sam­visku­skrúblur. Allt of margir hafa í ald­anna rás látið líf­iið til að verja meint heilög vé sam­visk­unnar, það er sann­ar­lega mál að linni," svarar Karl Guðmundi Andra.


Gengur ekki að gera eigin fordóma meiri en kærleiksboðskap


Vigfús Bjarni Alberts­son, sjúkra­húss­prestur á Land­spít­al­anum, skrifar um málið á sína Facebook-síðu í dag. Hann seg­ist ætla að berj­ast fyrir því „sem prestur, kirkju­þings­maður, stjórn­ar­maður í Presta­fé­lagi Íslands, sem mann­eskja, að þetta hug­tak fái ekki stað­ist í þessu sam­hengi. Enn og aftur ætlar fámennur hópur að ógna sam­fylgd þjóðar og kirkju. Nei takk.“

Vigfús er mjög gagn­rýn­inn á þá presta sem nota þetta hug­tak til að neita að fram­kvæma ákveðnar hjóna­vígslur og segir hug­takið sam­visku­frelsi ekki stand­ast skoðun. „Þetta hug­tak stenst ekki út frá vígslu­rétt­indum presta. Flestir þeirra eru emb­ætt­is­menn og því skylt að þjóna fólki sem slíkir.“ Það sé ekki hægt að neita fólki um þessi sjálf­sögðu mann­rétt­indi að ganga í hjóna­band. „Nema þeir vilji breyta þjóð­kirkj­unni í sér­trú­ar­söfnuð, mjög fámennan söfnuð, verði þeim að góðu.“ Þá segir hann að það gangi ekki að ætla að taka kær­leiks­boð­skap Krists og gera eigin for­dóma meiri.



Sam­visku­frelsi er hug­tak, í sam­hengi hjóna­vígslu, sem örfáir prestar nota. Þetta hug­tak stenst ekki. Rökin eru...

Posted by Vigfús Bjarni Alberts­son on Tuesday, Sept­em­ber 29, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár