Miklu meira horft á landsleiki í fótbolta á Íslandi en í nágrannaríkjum

Sjón­varps­á­horf á karla­lands­leiki í knatt­spyrnu mælist mun meira á Íslandi en í nágranna­ríkj­unum Danmörku, Noregi og Svíþjóð, sam­kvæmt mæl­ingum birt­inga­fyr­ir­tæks­ins MediaCom á Íslandi. Með­al­á­horf á leiki Íslands gegn Hollandi og Kasakstan fyrr í sept­em­ber mæld­ist nærri fimm­tíu pró­sent. Yfir 90 pró­sent þeirra sem voru að horfa á sjón­varpið á þessum tíma dags voru að horfa á leik­ina tvo.

Eins og kunn­ugt er þá lagði Ísland lið Hol­lend­inga að velli með einu marki gegn engu fimmtu­dag­inn 3. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og tryggði sér síðan þátt­töku­rétt á loka­móti Evr­ópu­móts­ins á sunnu­deg­inum eftir með marka­lausu jafn­tefli gegn Kasakstan.

Næstir á eftir Íslend­ingum í fót­boltaglápi á lands­lið koma Danir. Með­al­á­horf á leiki danska liðs­ins mælist 20 til 30 pró­sent. Með­al­á­horf á síð­ustu þrjá leiki Svía og Norð­manna hefur verið öllu lægra, eða á bil­inu 11 til 16 pró­sent.

Kjarninn fékk gögn frá MediaCom á Íslandi sem sýna sam­an­burð á sjón­varps­á­horfi á lands­leiki milli land­anna. Um er að ræða þrjá síð­ustu leiki lið­anna í und­ankeppni Evr­ópu­móts­ins, leiknir í júní og sept­em­ber. Tölurnar má sjá hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár