Laun starfsmanna sveitarfélaga hafa hækkað nærri tvöfalt meira en annarra

Laun starfs­manna sveit­ar­fé­laga hækk­uðu um 11 pró­sent frá 2. árs­fjórð­ungi 2014 til 2. árs­fjórð­ungs 2015. Á sama tíma hafa reglu­leg laun hækkað að með­al­tali um 5,7 pró­sent, á almennum vinnu­mark­aði hafa þau hækkað um 4,8 pró­sent og laun opin­bera starfs­manna hafa hækkað á þessu árs-tíma­bili um 7,8 pró­sent. Meðal opin­bera starfs­manna hafa laun rík­is­starfs­manna hækkað um 5,1 pró­sent en laun starfs­manna sveit­ar­fé­laga hafa hækkað um 11 pró­sent, eins og fyrr greinir.

launa­hækk­anir helstu hópa

|

Create infographics

Hag­stofan birti í dag vísi­tölu launa á 2. árs­fjórð­ungi. Fram kemur að í vísi­töl­unni gæti áhrifa tvennra kjara­samn­inga Kenn­ara­sam­bands­ins við fjár­mála­ráð­herra, fyrir hönd rík­is­sjóðs og Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga frá árinu 2014. Þá voru und­ir­rit­aðir kjara­samn­ingar á milli Samtaka atvinnu­lífs­ins og stærstu aðild­ar­fé­laga Alþýðu­sam­bands Íslands þann 29. maí síð­ast­lið­inn. Áhrifa þeirra samn­inga gætir í vísi­tölu launa á öðrum árs­fjórð­ungi en þau koma þó ekki að fullu fram fyrr en á þriðja árs­fjórð­ungi 2015.


Frá 1. árs­fjórð­ungi 2015 var hækkun reglu­legra launa eftir starfs­stétt á bil­inu 0,8 til 3,3 pró­sent. Laun þjón­ustu-, sölu- og afgreiðslu­fólks hækk­uðu mest, en laun iðn­að­ar­manna minnst. Árs­hækkun frá öðrum árs­fjórð­ungi 2014 var mest hjá sama hópi og hækk­aði milli árs­fjóð­unga, en þessi starfs­hópur hækk­aði um 6,8 pró­sent í laun milli ára. Minnst hækk­uðu laun iðn­að­ar­manna, eða um 2,7 pró­sent. Á sama tíma hækk­uðu reglu­leg laun tækna og sér­mennt­aðs starfs­fólks um 6,3 pró­sent, skrif­stofu­fólks um 5,4 pró­sent, verka­fólks um 4,9 pró­sent, sér­fræð­inga um 4,4 pró­sent og stjórn­enda um 3,3 pró­sent.

Frétt Hag­stof­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár