Þingmenn vilja skýrslu um kvikmyndagerð á Íslandi - Minnismerki William Wallace vinsælt

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, hefur ásamt tíu öðrum þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar lagt fram beiðni um skýrslu frá iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, Ragn­heiði Elínu Árna­dóttur, um hag­ræn áhrif kvik­mynda­gerðar á Íslandi, með sér­stakri áherslu á svæð­is­bundin áhrif. Þess er óskað að skýrslan liggi fyrir eigi síðar en í mars 2016. Í grein­ar­gerð með beiðn­inni er meðal ann­ars vísað í erlendar skýrslur af sam­bæri­legum toga og bent á Wallander lög­reglu­maður hafi aukið sýni­leika á Skáni og að minn­is­merki William Wallace hafi notið mik­illa vin­sælda í kjöl­far kvik­mynd­ar­innar Bravehe­art.

„Mikið hefur verið rætt um fram­lög og aðkomu rík­is­ins að kvik­mynda­gerð. Upp­lýs­ingar um tekjur og hag­ræn áhrif af kvik­mynda­fram­leiðslu í löndum sem við berum okkur saman við benda til þess að fjár­fest­ingar í kvik­mynda­gerð komi með jákvæða hvata inn í sam­fé­lagið og hafi mikil hag­ræn áhrif í hér­aði. Flutn­ings­menn telja nauð­syn­legt inn­legg í þá umræðu sem hér hefur farið fram um fram­lög til kvik­mynda­gerðar að ráð­ist verði í slíka úttekt á hag­rænum áhrifum,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

William Wallace vinsæll

Vísað er í nokkrar úttektir erlendis á hag­rænum áhrifum kvik­mynda við fram­leiðslu vin­sælla kvik­mynda og sjón­varps­þátta. „Má sem slíkt dæmi nefna kvik­mynd­irnar um Wallander lög­reglu­mann. Þær voru teknar á Skáni, sýni­leiki svæð­is­ins hefur auk­ist gríð­ar­lega í kjöl­farið og aug­lýs­inga­gildið sem birt­ing svæð­is­ins í mynd­unum hefur er metið á millj­ónir evra. Reynsla af sam­bæri­legum svæðum sýnir að gera má ráð fyrir að aukn­ing verði á ferða­manna­straumi sem nemur 4–10% árlega fyrstu þrjú árin eftir staður birt­ist í mynd sem nýtur alheims­hylli. Ef um sér­stak­lega vin­sæla staði er að ræða, eins og Ystad, heimabæ Wallanders, má gera ráð fyrir aukn­ingu um sem nemur 30–40% árlega. Því hefur verið fleygt að hver evra sem fjár­fest er skili við­kom­andi hér­aði allt að 43 evrum í hagnað (e. economic gain) af um­hverf­inu, ferða­mennsku og þjón­ustu í tengslum við það,“ segir í grein­ar­gerð­inni.


Fleiri dæmi eru nefnd, meðal ann­ars áhrif kvik­mynd­ar­innar Bravehe­art með mel Gibson og kvik­mynd­ar­innar Fields of Dreams með Kevin Costner. „Nefnda má fleiri erlend dæmi um aukn­ingu í ferða­mennsku, til að mynda skil­aði Bravehe­art, kvik­mynd Mel Gibsons, 52% fjölgun gesta við minn­is­merki William Wallace „The National Wallace Monument“ í Stirling. 17 árum eftir að myndin Fields of Dreams með Kevin Costner kom út komu 60–65 þús­und gestir til Dyer­sville í Iowa til að skoða hafna­bolta­völl­inn sem var not­aður við gerð mynd­ar­innar. Eftir að myndin Close Encounters of the Third Kind var sýnd varð 78% aukn­ing gesta við minn­is­merkið „Devils Tower Monument“ í Utah. Nú, ára­tugum seinna, muna 20% gesta enn eftir minn­is­merk­inu úr mynd­inni. Loks má nefna að yfir­völd í Santa Barbara sögðu frá því að eftir að myndin Sideways fékk til­nefn­ingu til Ósk­arsverð­launa birt­ust góðar/fríar fréttir í tengslum við mynd­ina með Santa Barbara í önd­vegi að verð­mæti 3,9 millj­ónir doll­ara ef greitt hefði verið fyrir þær í beinu mark­aðs­starfi.“


Ljóst er að miklir hags­munir eru í húfi, segir í grein­ar­gerð­inni, og þá þurfi að kort­leggja.


Jákvæð áhrif lík­leg


Í lok grein­ar­gerð­ar­innar segir að aukin umsvif í kvik­mynda­iðn­aði séu lík­leg til að hafa jákvæð áhrif, sér­stak­lega í ljósi stór­auk­inna umsvifa í fram­leiðslu kvik­mynd­aðs efnis síð­ustu þrjú ár.


„Benda má á að sam­kvæmt rann­sóknum sem ná til árs­ins 2010 var árleg velta kvik­mynda­iðn­aðar á Íslandi um 12,5 millj­arðar kr. eða um 0,7% af lands­fram­leiðslu, með 750 árs­verk, sem eru um 0,5% af vinnu­afli lands­ins. Það ár var velta ein­göngu í fram­leiðslu­hluta grein­ar­innar rétt rúm­lega 5 millj­arðar kr. en veltan hefur auk­ist hratt síðan þá og nam um 13,5 millj­örðum kr. árið 2012 og 12,1 millj­arði kr. árið 2013. Á fyrri hluta árs­ins 2014 var velta í fram­leiðslu­hlut­anum orðin um 9 millj­arðar kr. eða sam­bæri­leg og allt árið 2011.


Tekjur rík­is­ins af umsvif­unum 2010 voru um 1,92 millj­arðar kr. Tekjur rík­is­ins vegna erlendra ferða­manna sem ákveða Íslands­ferð vegna kvik­mynda er að lág­marki 2,5 millj­arðar kr. Þess má geta að í nýlegri skýrslu Ferða­mála­stofu nefndu 13,2% aðspurðra ferða­manna að kvik­myndir með íslensku lands­lagi og/eða íslenskar kvik­myndir væru ástæða hug­myndar þeirra um að koma til Íslands.


Samtals voru skatt­tekjur rík­is­ins vegna kvik­mynda um 4,42 millj­arðar kr. árið 2010, en fram­lög í Kvik­mynda­sjóð og í end­ur­greiðslu á kostn­aði það ár um 830 millj. kr. þannig að ávinn­ingur rík­is­ins vegna kvik­mynda var um 3,6 millj­arðar kr. það ár.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár