Arnar Þór, Lárentsínus og Pétur Dam metnir hæfastir í embætti dómara

Arnar Þór Jónsson, lektor við Háskól­ann í Reykja­vík, Lár­entsínus Krist­jáns­son hæsta­rétt­ar­lög­maður og Pétur Dam Leifsson, dós­ent við laga­deild Háskóla Íslands, voru metnir hæf­astir til að gegna emb­ætti dóm­ara við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur. Er það nið­ur­staða dóm­nefndar sem fór yfir hæfi umsækj­enda að menn­irnir þrír séu hæf­astir til að hljóta skipun í emb­ættið og að ekki séu efni til að gera upp á milli hæfni þeirra.

Greint er frá nið­ur­stöðu dóm­nefndar á vef inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Þar má lesa umsögn hennar í heild.

Embættið var aug­lýst þann 12. júní síð­ast­lið­inn og alls bár­ust sjö umsóknir. Auk þeirra þriggja sem eru metnir hæf­astir þá sóttu um emb­ættið þau Berglind Bára Sig­ur­jóns­dóttir, skrif­stofu­stjóri umboðs­manns Alþingis, Haf­steinn Dan Krist­jáns­son, aðstoð­ar­maður umboðs­manns Alþingis, Stefanía G. Sæmunds­dóttir, settur sak­sókn­ari, og Stefán Erlends­son, hér­aðs­dóms­lög­maður og lög­fræð­ingur hjá Vega­gerð­inni.

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið fór þess á leit við dóm­nefnd að hún léti í té umsögn um hæfi umsækj­enda, sam­kvæmt lögum um dóm­stóla, og skil­aði hún umsögn sinni þann 1. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár