Sjálfakandi bílar verða orðnir almenningseign eftir 10 ár

Sjálfa­kandi bílar eru orðnir að veru­leika og verða komnir í almenn­ings­eigu eftir um tíu ár. Þetta er spá Dr. Ralf G. Herrtwich sem stýrir þróun sjálf­keyr­andi bíla hjá Mercedes Benz. Hann kynnti þróun Daimler, móð­ur­fé­lags bíla­fram­leið­and­ans, á þess­ari nýju tækni og þær hindr­anir sem þarf að yfir­stíga á haust­ráð­stefnu Advania í Hörpu á föstu­dag.

Fyr­ir­tækið hefur verið að þróa þessa tækni í þónokkur ár en í sam­tali við Kjarnann segir Herrtwich skrið hafa kom­ist á þró­un­ina árið 2010. „Þetta fór að rúlla þegar við fórum að skoða þá tækni sem þegar er komin í bíl­ana,“ segir hann. „Sér­stak­lega hjá okkur þar sem alls­konar hjálp­ar­bún­aður fyrir öku­menn hefur verið lyk­il­at­riðið í að bæta öryggi far­þega.“


„Við veltum fyrir okkur þá: hvað er hið eðli­lega næsta skref? Bif­reiðin býr yfir svo mik­illi tækni að við átt­uðum okkur á að það væri ekki aðeins hægt að búa til sjálf­stýr­ingu á örygg­is­bún­aði heldur á öllum verk­efn­unum sem lúta að akstri.“


Nú þegar hefur hluta þess­arar nýju tækni verið komið fyrir í bílum frá Mercedes Benz. Herrtwich tekur dæmi af tækni sem kölluð er „Stop & Go“ sem var fyrst seld með bílum fyrir tveimur árum. Með þeirri tækni er bíll­inn sjálf­stýrður þegar hann er í umferð­ar­teppu og fær­ist aðeins fáeina metra í einu; eitt­hvað sem öllum bíl­stjórum þykir gríð­ar­lega leið­in­legt að sinna. „Bíllinn ferð­ast sjálfur, án þess að öku­mað­ur­inn þurfi að snerta stýrið eða pedal­ana, upp í 20 kíló­metra hraða. Þá biður bíll­inn þig um að taka við stjórn­inni.“


Teymi Herrtwich hefur þurft að takast á við mörg vanda­mál sem lúta sjálf­stýrðum bílnum. Sjálfur sagði hann í fyr­ir­lestri sínum að nú þegar væru bílar orðnir sjálf­stýrðir í aðstæðum þar sem öku­menn gera venju­lega mis­tök. Nægir hér að nefna spól­vörn eða ABS-hemla­læsi­kerfi sem dæmi, eða í nýrri bílum skynjara sem stöðva bíl­inn ef öku­maður er að bakka á kyrr­stæðan bíl eða staur. Hins vegar er það æði margt sem öku­menn gera yfir­leitt rétt og mun betur en tölvur kunna nú. Öll þau til­vik þurfi að for­rita og und­ir­búa áður en sjálf­stýrðir bílar verði almenn­ings­eign.


Herrtwich segir þess vegna að á næstu fimm árum verði Mercedes til­búið með tækni sem gerir öku­mönnum kleift að stilla á sjálf­stýr­ingu á hrað­brautum, þar sem til­tölu­lega auð­velt er að kenna bíl að aka. Eftir að minnsta kosti tíu ár verður svo hægt að bjóða upp á sjálf­stýr­ingu í borg­ar­um­hverfi þar sem hætt­urnar eru mun víðar og fjöl­breytt­ari. Þar þarf til dæmis að taka til­lit til umferð­ar­ljósa, gang­andi og hjólandi veg­far­enda og óskipu­lagð­ari bíla­um­ferð.


Hlusta má á sam­talið í heild sinni í spil­ar­anum hér að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár