Körlum í skólastjórastétt fer fækkandi og karlkennurum líka

Haustið 2014 voru 108 konur starf­andi skóla­stjórar í grunn­skólum á Íslandi en voru 68 haustið 1998. Á sama tíma fækk­aði körlum í skóla­stjóra­stétt um 62 og voru 63 haustið 2014.

Frá þessu greindi Hag­stofan í dag. Um haustið 2014 starf­aði 901 karl við kennslu í grunn­skólum lands­ins, eða 18,7 pró­sent starfs­fólks við kennslu. Körlum hefur farið fækk­andi meðal kenn­ara frá 1998, þegar karlar voru 26 pró­sent kenn­ara. Á sama tíma hefur konum við kennslu fjölgað og voru 3.911 haustið 2014.


Með­al­aldur starfs­fólks við kennslu í grunn­skólum hefur farið hækk­andi frá árinu 2000. Haustið 2000 var með­al­aldur starfs­fólks við kennslu 42,2 ár en var 46,4 ár haustið 2014. Á þessu tíma­bili hefur með­al­aldur kven­kenn­ara hækkað meira eða úr 41,8 árum í 46,5 ár. Með­al­aldur karl­kenn­ara hefur hækkað úr 43,6 árum í 46,0 ár. Með­al­aldur kenn­ara án rétt­inda er tölu­vert lægri en rétt­inda­kenn­ara og hefur svo verið á öllu tíma­bil­inu. Haustið 2014 var með­al­aldur kenn­ara með kennslu­rétt­indi 46,7 ár en með­al­aldur kenn­ara án kennslu­rétt­inda 39,1 ár.

Þá kemur fram í frétt Hag­stof­unnar að nem­endum í grunn­skólum á Íslandi hafi fjölgað annað árið í röð og voru 43.136 tals­ins um haustið 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár