Hjúkrunarfræðingar fá um 25 prósenta hækkun á fjórum árum

Laun hjúkr­un­ar­fræð­inga hækka um sirka 25 pró­sent á næstu fjórum árum, sam­kvæmt nið­ur­stöðu gerð­ar­dóms sem kvað upp dóm sinn í kjara­deilum milli rík­is­ins, aðild­ar­fé­laga BHM og Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga (FÍH) í dag.

Dómurinn var birtur á net­inu klukkan tvö í dag en í skjalið sem birt er vantar upp­lýs­ingar um nið­ur­stöðu í máli hjúkr­un­ar­fræð­inga. Kjarninn hefur áður sagt frá því að laun félaga BHM hækka um 7,2 pró­sent í ár og 5,5 pró­sent árið 2016, sam­kvæmt nið­ur­stöðu gerð­ar­dóms.

Kjara­samn­ingur við hjúkr­un­ar­fræð­inga gildir til 31. mars 2019, eða í fjögur ár. Hann er því um tveimur árum lengri en samn­ing­ur­inn við BHM og um þremur mán­uðum lengri en samn­ingar sem gerðir voru á almennum vinnu­mark­aði í vor. Í sam­tali við Kjarnann segir Ólafur G. Skúlason, for­maður FÍH, að nið­ur­staða gerð­ar­dóms kveður á um end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði sem gildi ef öðrum kjara­samn­ingum verði sagt upp og múl­bindi því ekki félagið til fjög­urra ára. Auk pró­sentu­hækk­ana á launum fá félags­menn FÍH 70 þús­und króna ein­greiðslu árið 2019. Fyrir með­al­hjúkr­un­ar­fræð­ing nemi launa­hækkun á tíma­bil­inu, að öllu með­töldu, um 25 pró­sentum, segir Ólafur.

Spurður um hans fyrstu við­brögð við nið­ur­stöðu gerð­ar­dóms seg­ist hann ágæt­lega sáttur, en setur þó fyr­ir­vara á þar sem hann sé ekki búin að rýna nið­ur­stöð­una end­an­lega. Kjara­samn­ing­ur­inn virð­ist þó betri en ríkið hafi boðið við samn­ings­borðið og þetta virð­ist því vera jákvæð skref.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár