Spá verðbólgu undir markmiði í ágúst en hækkunum í haust

Spár grein­ing­ar­deilda Íslands­banka, Arion banka og Lands­bank­ans gera ráð fyrir því að verð­bólga mælist á bil­inu 1,7 til 1,9 pró­sent í næstu verð­bólgukönnun Hag­stof­unnar, sem verður opin­beruð þann 27. ágúst næst­kom­andi. Greining Íslands­banka spáir 0,5 pró­senta hækkun verð­lags milli mán­aða (sem myndi þýða 1,9 pró­senta hækkun verð­lags á síð­ustu tólf mán­uðum), grein­ing­ar­deild Arion banka spári 0,2 pró­sent hækkun verð­lags (1,8 pró­sent árs­verð­bólga) og hag­fræði­deild Lands­bank­ans spáir 0,1 pró­sent hækkun verð­lags (1,7 pró­sent hækkun árs­verð­bólgu). Verð­bólgan í júlí mæld­ist 1,9 pró­sent.

Gangi spárnar eftir helst verð­bólga á Íslandi undir 2,5 pró­senta verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans 19. mán­uð­inn í röð, eða frá því í febr­úar 2014.

Mikil verðbólga í kortunum

Grein­ingar bank­anna gera allar ráð fyrir tölu­verðri hækkun verð­bólgu á haust­mán­uðum og að hún muni mæl­ast yfir þremur pró­sentum í nóv­em­ber. Í hag­sjá Lands­bank­ans í dag eru ástæður fyrir hækk­andi verð­bólgu sagðiar vera kjara­samn­ings­bundnar launa­hækk­anir ásamt launa­skriði, aukin inn­lend eft­ir­spurn, hækkun verð­bólgu­vænt­inga ásamt boð­uðum útgjöldum í rík­is­rekstri til að liðka fyrir kjara­samn­ingum. Þessir þættir muni byrja að skila sér í hækk­andi verð­lagi á Íslandi í sept­em­ber.

http://t.co/l1SEt31mKU Ágúst­mæl­ing á vísi­tölu neyslu­verðs verður birt 27. ágúst. Við spáum 0,1% hækkun. #efna­hagsmal pic.twitter.com/sv92gDEhpH

— Efna­hags­mál (@efnahagsmal) August 14, 2015


„Við spáum því að árstaktur verð­bólg­unnar fari hratt hækk­andi á næst­unni. Hluti af skýr­ing­unni liggur í því að olíu­verð fór hríð­lækk­andi síð­ast­liðið haust og lækk­aði heims­mark­aðs­verð á olíu í kringum 50% á stuttum tíma. Samhliða því lækk­uðu flug­far­gjöld til útlanda og elds­neyt­is­verð inn­an­lands umtals­vert og fór verð­bólgan hratt lækk­andi í kjöl­farið. Þróunin framundan mun frekar lit­ast af hækk­unum á inn­lendum neyslu­vörum í kjöl­far kjara­samn­inga og mun það þrýsta árs­verð­bólg­unni hratt upp á við þar sem um er að ræða tölu­vert meiri verð­lags­hækk­anir en á sama tíma í fyrra. Í spá okkar fyrir næstu mán­uði gerum við ráð fyrir að gengi krón­unnar og elds­neyt­is­verð standi í stað en nokkrar líkur eru á því að elds­neyt­is­verð haldi áfram að lækka. Einnig má vera að gengi krón­unnar styrk­ist á kom­andi mán­uðum ef horft er til gjald­eyr­is­inn­flæðis inn í landið að und­an­förnu. Það má því vera að verð­bólgu­spáin verði færð niður á við á næstu mán­uðum,“ segir grein­ing­ar­deild Arion banka um horf­urnar næstu miss­eri.


Greining Íslands­banka segir þrýst­ing á íbúða­verð og launa­hækk­anir hafa áhrif til hækk­unar verð­bólgu eftir því sem nær dregur árs­lokum. „Við teljum að verð­bólga muni aukast eftir því sem nær dregur árs­lokum og dag­ur­inn stytt­ist. Að hluta til er ástæðan sú að tíma­bil verð­stöðn­unar á seinni hluta síð­asta árs dettur út úr 12 mán­aða mæl­ingu vísi­tölu neyslu­verðs. Súverð­stöðnun kom til að stærstum hluta vegna hag­stæðrar þró­unar elds­neyt­is­verðs, áhrifa af breyt­ingum á sköttum og gjöldum á neyslu­varn­ingi og fremur lít­ils kostn­að­ar­þrýst­ings inn­an­lands eftir hóf­sama kjara­samn­inga í upp­hafi síð­asta árs.


Við þetta bæt­ist þó að inn­lendur verð­bólgu­þrýst­ingur er að aukast tölu­vert nú um stundir. Þar vegur þungt umtals­verð hækkun launa hjá stórum hluta vinnu­mark­að­ar­ins í nýlegum kjara­samn­ingum, en einnig kemur til við­var­andi hækkun raun­verðs íbúð­ar­hús­næðis og vax­andi fram­leiðslu­spenna á ýmsum sviðum hag­kerf­is­ins. Munu þessir þættir þrýsta upp verð­bólgu þrátt fyrir lít­inn inn­fluttan verð­þrýst­ing að mati okkar, og leiða til þess að verð­bólgan verður tals­vert yfir 2,5% mark­miði Seðla­bank­ans næstu árin,“ segir í morg­un­korni grein­ingar Íslands­banka í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár