Skjárinn semur við FOX

SkjárEinn hefur samið við sjón­varps­fyr­ir­tækið Twentieth Century Fox um að sjón­varsefni FOX verði á Skjá­Einum. Í til­kynn­ingu frá Skjánum er samn­ing­ur­inn sagður sá mik­il­væg­asti sem fyr­ir­tækið hefur skrifað undir í áraraðir og tryggi meira fram­boð af nýjum sjón­varps­þáttum en nokkru sinni. Allir nýir þættir sem FOX fram­leiðir verða sýndir á Skjá­Einum á samn­ings­tím­anum auk þess sem eldri þátt­araðir FOX verða aðgengi­legar í streym­is­þjón­ustu Símans.

„Auk frá­bærra Fox-þátta sem samn­ing­ur­inn tryggir okkur sýnum við The Voice í íslenskri útgáfu í fyrsta sinn, en það er stærsta fram­leiðsla sem SkjárEinn hefur ráð­ist í. Þriðja íslenska Biggest Loser þátta­röðin verður sýnd eftir ára­mót og ekki má gleyma hörku­spenn­andi Evr­ópu­meist­ara­móti í knatt­spyrnu 2016,“ segir Pálmi Guð­munds­son, for­stöðu­maður ljós­vaka­miðla Símans, í til­kynn­ingu.


Skjárinn er hluti af sam­stæðu Símans og rekur sjón­varps­stöð­ina SkjáEinn.


Í sam­tali við Kjarnann segir Pálmi að samn­ing­ur­inn sé til nokk­urra ára en gefur ekki upp nákvæm­lega tíma­lengd hans né virði. Spurður hvort SkjárEinn ætli sér nú í virk­ari sam­keppni á sjón­varps­mark­aði svarar Pálmi því ját­andi. Hann bendir á að fyrir um einu og hálfu ári hafi Skjárinn samið við Disney um sýn­ingu sjón­varps­efnis, síðan hafi verið end­ur­samið við stærsta birgja Skjásins, CBS Tel­evision og nú bæt­ist FOX við. „Við erum að stór­auka úrvalið og fram­leiðum tvo inn­lenda þætti, Biggest Loser Ísland og íslensku útgáfu The Voice.“


Á annan tug nýrra þáttar­aða frá Fox verða frum­sýndar á Skjá­Einum í vetur og hefj­ast sýn­ingar í haust. Þeirra á meðal eru Minority Report, Scream Queens, The Bastard Executioner og American Crime Story.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár