Mjólkursamsalan gengur í Viðskiptaráð - Allt í lagi þótt hagsmunir fari ekki saman öllum stundum

„Það er þannig, að ef menn vilja hafa áhrif á umræð­una þá verða þeir að vera þar sem umræðan fer fram og gera grein fyrir máli sínu. Okkur líður ekk­ert illa í lýð­ræð­is­legum félags­skap, þar sem skipst er á skoð­unum. Við munum eflaust líka læra margt af því sem sagt er innan ráðs­ins,“ segir Ari Edwald, for­stjóri Mjólk­ur­sam­söl­unnar (MS), í sam­tali við Kjarnann, um inn­göngu MS í Við­skipta­ráð Íslands. Greint var frá því í dag á vef­síðu Við­skipta­ráðs að Mjólk­ur­sam­salan hafi gengið í sam­tökin.

Við­skipta­ráð (VÍ) hefur meðal ann­ars talað fyrir veiga­miklum breyt­ingum á íslensku land­bún­að­ar­kerf­inu, sagt neyt­endur tapa mestu á núver­andi kerfi og að æski­leg­ast væri að afnema tolla á öllum vöru­teg­undum. Mjólk­ur­sam­salan er rekstr­ar­fé­lag mjólkur­iðn­að­ar­ins á Íslandi og er í eigu rúm­lega 650 kúa­bænda um land allt.


Spurður hvernig hags­munir og sýn Við­skipta­ráðs fari saman með hags­munum MS segir Frosti Ólafsson, fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs, það ekki víst að hags­munir eða sjón­ar­mið ráðs­ins fari öllum tímum saman með stjórn­endum MS og fyr­ir­tæk­inu. Mjólk­ur­sam­salan sé þó stórt rekstrar- og iðn­að­ar­fyr­ir­tæki og við­fangs­efni þess séu af ýmsum toga. Bróð­ur­partur af mál­efna­starfi Við­skipta­ráðs fari saman með hags­munum MS. Auk þess sé það gott fyrir starfið að skiptar skoð­anir og ólík sjón­ar­mið fái að heyr­ast í beinum sam­skiptum. Grunn­stefna Við­skipta­ráðs breyt­ist ekki þótt sjón­ar­mið ein­staks eða fárra aðild­ar­fé­laga fari á skjön við hana. „Það eru mörg dæmi um að ein­stakir stjórn­endur eða fyr­ir­tæki séu ósam­mála því sem kemur frá okkur. En við reyna að vinna almennt með heild­ar­hags­muni að leið­ar­ljósi,“ segir Frosti.

Excel-æfingar innlegg en ekki afdráttarlaus skoðun

Ari Edwald tók við starfi for­stjóra MS í byrjun júlí. Hann var áður for­stjóri 365 miðla og sat sem slíkur í vara­stjórn Við­skipta­ráðs. Með inn­göngu MS í Við­skipta­ráð er ljóst að Ari mun áfram taka þátt í starfi ráðs­ins.


„Mjólk­ur­sam­salan hefur átt aðild að Samtökum atvinnu­lífs­ins (SA) um ára­tuga­skeið og margir for­svars­menn MS hafa verið þar í fram­línu, sér­stak­lega á árum áður. Við­skipta­ráð rekur að flestu leyti svipað pró­gramm, varð­andi varð­stöðu um hags­muni atvinnu­lífs­ins í heild. Við höfum starfað á vett­vangi SA en ekki VÍ. Ég þekki sjálfur til í VÍ, við ræddum þetta og okkur fannst tíma­bært að fara þangað inn líka og taka þátt í umræð­unni, von­andi til gagns fyrir báða aðila,“ segir Ari um til­komu þess að MS gerð­ist félagi í Við­skipta­ráði.


Spurður um meinta hags­muna­á­rekstra VÍ og MS, einkum hvað tolla­mál varðar, segir Ari stefnu Við­skipta­ráðs ekki hafa verið afdrátt­ar­lausa um tolla­af­nám eða um hvort land­bún­aður eigi að þríf­ast á Íslandi eða ekki. „Nið­ur­stöður á vett­vangi svona breiðra sam­taka eru yfir­leitt ein­hvers­konar mála­miðlum og tekur til­lit til margra þátta. Við erum ekk­ert að gera of mikið með eina skýrslu eða ályktun. Sumt af því er nú bara ágætis excel-æfingar, sem geta verið inn­legg í umræð­una þó að mönnum geti þótt það mis­jafn­lega breið sýn á málin. Stundum eru umræðu­efnin ansi þröngt afmörkuð og taka ekki nægi­lega til­lit til afleiddra þátta.


En það er þannig, að ef menn vilja hafa áhrif á umræð­una þá verða þeir að vera þar sem umræðan fer fram og gera grein fyrir máli sínu. Okkur líður ekk­ert illa í lýð­ræð­is­legum félags­skap, þar sem skipst er á skoð­unum. Við munum eflaust líka læra margt af því sem sagt er innan ráðs­ins,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár