Útgjöld ríkissjóðs jukust um 27 milljarða og tekjur um 14 milljarða króna

Útgjöld rík­is­ins juk­ust um 26,6 millj­arða króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2015 sam­an­borið við fyrstu sex mán­uð­ina 2014. Á sama tíma juk­ust tekjur um 14,2 millj­arða króna. Handbært fé frá rekstri var nei­kvætt um 30,3 millj­arða króna sam­an­borið við jákvætt hand­bært fé upp á rúma ell­efu millj­arða króna í fyrra. Tekju­jöfn­uður, munur á tekjum og gjöldum, var jákvæður um 779 millj­ónir króna.

Greiðslu­af­koma rík­is­sjóðs fyrir fyrri helm­ing árs 2015 var birt í dag. Þar segir að nei­kvæð staða hand­bærs fjárs skýrist að stærstum hluta með því að leið­rétt­ing verð­tryggðra hús­næð­is­lána sem gjald­færð var á árinu 2014 kom til greiðslu nú í byrjun árs 2015. „Þetta hefur ein­göngu áhrif á sjóðs­hreyf­ingar en ekki rekstr­ar­stöðu árs­ins 2015 og hafði sam­bæri­leg jákvæð áhrif á hand­bært fé í lok árs 2014,“ segir í til­kynn­ingu frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu.


Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála­ráð­herra.


Hér að neðan má lesa um helstu tekjur og gjöld rík­is­sjóðs á fyrstu sex mán­uðum árs­ins.

Tekjur af tekjum, tóbaki og tollum

Inn­heimtar tekjur námu 320,5 millj­örðum króna á fyrri helm­ingi árs­ins sem er 4,6 pró­sent meira en inn­heimt­ist á sama tíma­bili í fyrra. Nið­ur­staða tíma­bil­is­ins er 25,3 millj­örðum yfir áætlun fjár­laga, eða 8,6 pró­sentum hærra en áætlað var. Það er sagt umtals­vert. „Það skýrist þó að miklu leyti af ýmsum óreglu­legum og til­fallandi þáttum sem nánar verður farið yfir hér á eftir. Þegar litið er til þró­unar skatt­stofna á fyrri helm­ingi árs­ins er hún í meg­in­dráttum í sam­ræmi við áætlun fjár­laga.“


Nærri 86 pró­sent heild­ar­tekna eru af inn­heimtu hinna ýmsu skatta og trygg­inga­gjalda. Sá hluti jókst um 6,1 pró­sent milli ára. Skattar á tekjur og hagnað juk­ust um 9,6 pró­sent milli ára og námu sam­tals 116,7 millj­örðum króna. Tekju­skattur ein­stak­linga nam 65,3 millj­örðum króna sem er 3,8 pró­sentum meira en í fyrra. Tekju­skattur lög­að­ila jókst um 34 pró­sent milli ára og nam 26,6 millj­örðum króna. Þar af nam sér­stakur fjár­sýslu­skattur 4,9 millj­örðum króna. Fjár­magnstekju­skattur skil­aði 24,7 millj­örðum króna og jókst um 4,5 pró­sent milli ára. Fjár­magnstekju­skattur greiddur af rík­inu sjálfu nam 5,6 millj­örðum. Það skýrist af arð­greiðslu Lands­bank­ans til eig­anda síns, rík­is­sjóðs.


Eign­ar­skattar dróg­ust saman milli ára um 35,2 pró­sent og námu 3,5 millj­örðum króna. Það skýrist af brott­falli auð­legð­ar­skatts frá og með síð­ustu ára­mótum. Stimp­il­gjöld námu 1,8 millj­arði króna sem er aukn­ing um 14,7 pró­sent frá því í fyrra. Tekjur af erfða­fjár­skatti dróg­ust saman um 15,4 pró­sent milli ára og námu 0,9 millj­örðum.


Skattar á vöru og þjón­ustu juk­ust um 5,8 pró­sent milli ára og námu sam­tals 112,5 millj­örðum króna. Virð­is­auka­skattur vegur þar þyngst og skil­aði 77,9 millj­örðum.


Vöru­gjöld af öku­tækjum námu 3,4 millj­örðum og eykst um 33,7 pró­sent milli ára. Það skýrist af auknum inn­flutn­ingi bif­reiða. Vöru­gjöld af bens­íni skil­uðu 5,6 millj­örðum og olíu­gjaldið, sem jókst um 6,7 pró­sent milli ára, skil­aði 3,4 millj­örðum. Kolefn­is­gjaldið skil­aði 1,6 millj­arði króna.


Tekjur af tóbaks­gjaldi námu 2,9 millj­örðum króna og dróg­ust saman um 3,7 pró­sent. Tekjur af áfeng­is­gjaldi námu 5,9 millj­örðum og var rétt yfir áætlun. Sala áfengis á fyrstu sex mán­uðum árs­ins mæld í vín­anda jókst um rúm­lega 1 pró­sent en tóbaks­sala dróst saman um 3,2 pró­sent að magn­inu til.


Tollar og aðflutn­ings­gjöld námu 2,6 millj­örðum króna. Það er sam­dráttur um 3,7 pró­sent og skýrist af áhrifum frí­versl­un­ar­samn­ings Íslands og Kína frá 1. júlí 2014.


Aðrir skattar námu sam­tals 4 millj­örðum.

Gjöld vegna lánaniðurfærslna, heilbrigðismála og löggæslu

Greidd gjöld námu 319,7 millj­örðum króna og juk­ust um 26,6 millj­arða króna frá fyrra ári, eða um 9,1 pró­sent, sem er minna en gert hafði verið ráð fyrir.


Útgjöld til almennrar opin­berar þjón­ustu voru svipuð milli ára og námu 70,8 millj­örðum króna. Fjár­magns­kostn­aður rík­is­sjóðs skýrir stærstan hluta upp­hæð­ar­innar, eða 64 pró­sent. Hann nam 45,4 millj­örðum króna á tíma­bil­inu. Greiðslur til Jöfn­un­ar­sjóðs sveit­ar­fé­laga námu 8,8 millj­örðum og útgjöld vegna utan­rík­is­mála námu 4,7 millj­örðum króna. Útgjöld vegna fjár­mála­stjórn­sýslu rík­is­ins voru 5,3 millj­arðar og útgjöld til ann­arra liða sem falla undir almenna opin­bera þjón­ustu voru um 6,6 millj­arðar.


Útgjöld vegna lögð og rétt­ar­gæslu námu um 10,8 millj­örðum og voru svipuð milli ára. Útgjöld til efna­hags- og atvinnu­mála námu 45,4 millj­örðum króna og juk­ust tölu­vert. Fjár­mála­ráðu­neytið segir það í sam­ræmi við það sem gert var ráð fyrir. Stærsti útgjalda­lið­ur­inn, 17,1 millj­arður króna, er vegna nið­ur­færslu verð­tryggðra hús­næð­is­lána. Útgjöld til sam­göngu­mála námu 11,3 millj­örðum, um 6,7 millj­örðum til land­bún­að­ar­mála og útgjöld vegna almennra atvinnu­mála og mark­aðs­eft­ir­lits námu 3,1 millj­arði.


Útgjöld til heil­brigð­is­mála námu rúmum 73 millj­örðum króna og juk­ust um 5,1 millj­arð. Útgjöld til menn­ingar- og félags­mála námu um 9,5 millj­örðum króna. Útgjöld vegna almanna­trygg­inga og vel­ferð­ar­mála námu 63,9 millj­örðum króna.


Útgjöld vegna atvinnu­leysis námu 6,4 millj­örðum sam­an­borið við 7,7 millj­arða í fyrra. Önnur útgjöld námu 15,4 millj­örðum. Útgjöld vegna líf­eyr­is­skuld­bind­inga námu 6,1 millj­arði króna.


Hreinn láns­fjár­jöfn­uður rík­is­sjóðs er nei­kvæður um 12,4 millj­arða króna en var á sama tíma í fyrra jákvæður um 3,7 millj­arða. Afborg­anir lána námu sam­tals 54,2 millj­örðum. Lántökur á fyrri helm­ingi árs námu alls 29,5 millj­örðum og voru allar inn­lendar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár