Hvalur hf. tapaði milljarði á hvalveiðum en hagnaðist um þrjá milljarða króna

Hvalur hf. hagn­að­ist um rúma þrjá millj­arða króna á síð­asta rekstr­ar­ári, sem náði frá 1. októ­ber 2013 til 30. sept­em­ber 2014. Tekjur félags­ins af sölu hval­af­urða nam rúm­lega millj­arði króna á þessu tíma­bili en kostn­aður vegna rekst­urs hval­veiði­skipa og útgerðar í Hval­firði var tvö­falt hærri, eða rúm­lega tveir millj­arðar króna. Rekstr­ar­árið á undan voru tekjur af hval­kjöts­sölu svip­aðar og í fyrra en kostn­að­ur­inn vegna hval­veiða nam þá tæp­lega 1,6 millj­arði króna.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi félags­ins sem skilað var til árs­reikn­inga­skrár Rík­is­skatt­stjóra fyrir versl­un­ar­manna­helgi. Stærsti eig­andi Hvals hf. er Fisk­veiði­hluta­fé­lagið Venus. Það er að stórum hluta í eigu Krist­jáns Lofts­sonar, fram­kvæmda­stjóra Hvals hf.


Hvalur hf. rekur hval­stöð­ina í Hval­firði, gerir út hval­veiði­skip og vinnur afurð­irnar. Fram kemur í árs­reikn­ingnum að á árinu 2013 voru veiddar 134 lang­reyðar og 137 árið 2014.


Þrátt fyrir að veiði á lang­reyðum hafi skilað um millj­arðs króna tapi á síð­asta rekstr­ar­ári þá hagn­að­ist félagið um þrjá millj­arða króna. Tekjur voru 4,3 millj­arðar, að langstærstum hluta vegna eign­ar­hluta Hvals hf. í félag­inu Vogun hf. Það félag á þriðj­ungs­hlut í HB Granda, einu stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki Íslands. Tekjur af óbeinum eign­ar­hlut Hvals í HB Granda nam 3,2 millj­örðum króna á rekstr­ar­ár­inu.


Í árs­reikn­ingi Hvals hf. er lagt til að um 800 millj­ónir greið­ist til hlut­hafa í formi arðs. Hlut­hafar eru 109 tals­ins, flestir ein­stak­lingar með eign­ar­hlut innan við eitt pró­sent. Eignir félags­ins í lok sept­em­ber 2014 voru að and­virði 23,7 millj­arðar króna og eigið fé var 15,7 millj­arðar. Eig­in­fjár­hlut­fall félags­ins var því 65,99 pró­sent í lok rekstr­ar­árs­ins.


Í skýrslu stjórnar í árs­reikn­ingnum er farið yfir hval­veiðar félags­ins á síð­ustu árum. Hval­veiðar hófust að nýju árið 2006 eftir átján ára hlé. Það ár veiddi Hvalur hf. sjö lang­reyðar af kvóta sem taldi níu lang­reyðar. Árið 2009 var gefin út reglu­gerð um að næstu fimm árin yrði árlega heim­ilt að veiða þann fjölda lang­reyða sem kveðið er á um í veiði­ráð­gjöf Haf­rann­sókn­ar­stofn­unnar. Sumarið 2009 veiddi Hvalur hf. 125 lang­reyðar og sum­arið eftir veiddi það 148 lang­reyðar. Ekki voru stund­aðar hval­veiðar næstu tvö ár. Þær hófust að nýju í júní 2013 og veidd­ust þá 134 lang­reyðar en 137 í fyrra.

Tveggja milljarða farmur á leið yfir hafið

Greint var frá því í dag að virði farms­ins á flutn­inga­skip­inu Winter Bay, sem nú siglir norð­ur­aust­ur­leið um Íshafið norðan Rúss­lands á leið til Japan, er um tveir millj­arðar króna. Farm­ur­inn er hval­kjöt og hval­spik úr Hval­stöð­inni í Hval­firði. Kristján Loftsson stað­festi við norskan fjöl­miðil í gær hvert virði farms­ins er en alls eru um 1.800 tonn af hval­kjöti og hval­spiki um borð. Afurð­irnar eru frá ver­tíð síð­asta sum­ars.

Hval­veiðar Íslend­inga hafa sætt mik­illi gagn­rýni frá því að þær hófust á ný, bæði eru þær umdeildar inn­an­lands og gagn­rýndar af leið­togum ann­arra ríkja, meðal ann­ars Banda­ríkj­anna. Samtök gegn hval­veiðum hafa beitt sér gegn hval­veiðum Hvals hf. og reynt að koma í veg fyrir að hval­kjötið og hval­spikið kom­ist leiðar sinnar til Japan.Í við­tal­inu við norska sjáv­ar­út­vegs­blaðið gagn­rýnir Kristján harð­lega þau sam­tök sem hafa beitt sér gegn hval­veiðum. „Ég forð­ast ákveðið að nefna þessi sam­tök nöfnum sínum og gildir þá einu í hvaða sam­hengi það er. Þau eru á móti öllu, líka því sem er lög­legt og nota gjarnan ólög­legar aðferðir til að koma sinni sýn á fram­færi. Þau lifa á athygl­inni sem þau fá í fjöl­miðlum og ég vil ekki hjálpa til við það með því að nefna nöfn þeirra á opin­berum vett­vangi,“ segir Kristján, í þýð­ingu Skessu­horns sem greindi frá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár