Hefur oft verið beðinn um að hætta útgáfu tekjublaðs Frjálsrar verslunar

Benedikt Jóhann­es­son, útgef­andi Frjálsrar versl­unar, segir að fjöldi atvinnu­rek­enda hafi oft og tíðum þrýst á sig og viljað að hann hætti útgáfu tekju­blaðs­ins. Þetta sagði Benedikt í við­tali í þætt­inum Launa­þátt­ur­inn á sjón­varps­stöð­inni Hring­braut. Tekju­blað Frjálsrar versl­unar kemur út árlega og sýnir tekjur yfir þrjú þús­und Íslend­inga, byggt á álagn­ing­ar­skrám Rík­is­skatt­stjóra. Blaðið hefur komið út í ald­ar­fjórð­ung.

Í frétt Hringrbrautar er haft eftir Benedikt að birt­ingin sé þyrnir í augum margra atvinnu­rek­enda. Þeir hafi margir hverjir hringt og þrá­beðið um að útgáf­unni verði hætt því hún kalli á elífan sam­an­burð á launum innan fyr­ir­tækja, og mik­inn og við­var­andi þrýst­ing á kaup­hækk­anir. Hann hafi þó aldrei látið segj­ast, enda líti hann á útgáfu blaðs­ins sem mik­il­væga upp­lýs­ingu fyrir lands­menn, sem auð­veldi launa­fólki að semja um kjör sín. Full­kom­lega eðli­legt sé að fólk beri saman laun sín og skoði hvernig kaupin ger­ist á eyr­inni. Það veiti aðhald, en leynd­ar­hyggja skapi aðeins óþarfa tor­tryggni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár