Meiri útflutningur, meiri innflutningur og halli á vöruskiptum

Verðmæti vöru­út­flutn­ings á fyrstu sex mán­uðum árs­ins var 22,6 pró­sentum hærra í ár en á sama tíma­bili 2014 og nam alls 332,4 millj­örðum króna. Verðmæti inn­flutn­ingur jókst einnig á þessu tíma­bili, um alls 20,5 pró­sent milli ára, og nam 338,4 millj­örðum króna. Halli á vöru­skiptum, það er munur á inn- og útflutn­ingi, á fyrri árs­helm­ingi var því 5,9 millj­arðar króna. Aukning á inn­flutn­ingi nam 57,5 millj­örðum og aukn­ing á útflutn­ingi nam 61,3 millj­örðum króna.

Aukin inn­flutn­ingur er helst vegna flutn­ings á hrá- og rekstr­ar­vörum og flug­vélum, sam­kvæmt frétt Hagstofu Íslands um vöru­skipta­jöfnuð á fyrri helm­ingi árs­ins 2015. Iðn­að­ar­vörur voru 54 pró­sent alls útflutn­ings og var verð­mæti þeirra nærri 30 pró­sentum hærra en á sama tíma árið áður, aðal­lega vegna útflutn­ings á áli. Sjáv­ar­af­urðir voru 42,1 pró­sent alls vöru­út­flutn­ings og var verð­mæti þeirra 23,2 pró­sent hærra en á sama tíma árið áður, aðal­lega vegna útflutn­ings á fiski­mjöli.


Í júní síð­ast­liðnum voru fluttar út vörur fyrir 56,2 millj­arða en inn fyrir 66,4 millj­arða króna. Vöru­skiptin í þeim mán­uði voru því nei­kvæð um 10,2 millj­arða króna. Fyrir þann mánuð voru vöru­skipi því jákvæð það sem af var ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár