Skattayfirvöld skoða greiðslur frá útlöndum til að fylgjast með útleigu í gegnum Airbnb

Skortur á upp­lýs­ingum um hverjir selj­endur eru og hvaða eignir verið er að leigja út til ferða­manna í gegnum íbúða­leigu­síð­una Airbnb gerir eft­ir­lit skatta­yf­ir­valda flókið. Þess vegna hefur rík­is­skatt­stjóri stundað svo­kall­aða „frá­vika­grein­ingu“ og skoðað greiðslur erlendis frá inn á inn­lenda banka­reikn­inga. Þetta kom fram í hádeg­is­fréttum Bylgj­unnar í dag þar sem rætt var við Sigurð Jensson, for­stöðu­manns eft­ir­lits­sviðs Rík­is­skatt­stjóra.

„Við höfum fylgst vel með þessu. Eins og þetta er sett upp í dag þá er ekki hægt að fá upp­lýs­ingar um það hverjir eru selj­endur og hvaða eignir er verið að leigja út. Það gerir eft­ir­lit flókn­ara. Því hefur verið reynt að fara aðrar leiðir í þessu. Gera það með þeim hætti, við höfum skoðað greiðslur erlendis frá inn á banka­reikn­inga. Því er í raun farið í frá­vika­grein­ingu hjá gjald­endum og þannig uppgvötað mis­fellur í skatt­skilum,“ sagði Sigurður. Hann sagði mál sem varða greiðslur erlendis frá inn á íslenska banka­reikn­inga skipta hund­ruðum, en gat ekki sagt hversu mörg þeirra tengj­ast íbúða­leigu­síðum.


Yfir 1.800 íbúðir og her­bergi í Reykja­vík eru skráð á Airbnb.com, sem er vin­sælasta íbúða­leigu­síðan. Sæmkvæmt núgild­andi lögum þurfa íbúða­eig­endur að sækja um leyfi til að leigja út íbúð­ina sína og greiða af starf­sem­inni skatta. Það gera hins vegar fæstir. Í frétt RÚV frá apríl síð­ast­liðnum sagði að hátt í 60 pró­sent íbúða og her­bergja sem leigð eru ferða­mönnum í Reykja­vík í gegnum vef­síð­una séu leigð án starfs­leyfis. Á síð­asta þingi lagði iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra fram frum­varp sem heim­il­aði heimagist­ingu gegn end­ur­gjaldi á lög­heim­ili fólks í allt að átta vikur á ári. Frum­varpið varð ekki að lögum fyrir þing­lok.


Miklar tekjur má hafa af skamm­tíma­út­leigu íbúða til ferða­manna í Reykja­vík en algengt verð fyrir gistinótt er 150 til 200 doll­arar, jafn­virði um 20 til 27 þús­und króna.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár