Fasteignaverð hefur hækkað um 9,1 prósent - Er enn þriðjungi lægra en árið 2007

Fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 9,1 pró­sent frá maí 2014 til maí 2015. Árs­hækkun á fjöl­býli var 9,5 pró­sent á þessu tíma­bili og 7,6 pró­sent á sér­býli. Miklar verð­hækk­anir urðu í maí­mán­uði, þegar hækk­anir voru 1,1 pró­sent milli mán­aða. Þjóðskrá birti upp­færða vísi­tölu íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í gær en vegna verk­falls lög­fræð­inga hjá Sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu verður töf á birt­ingu vísi­töl­unnar fyrir júní. Fram kemur á vef RÚV að nú sé loks búið að fara yfir alla skjala­bunk­ana sem söfn­uð­ust upp í verk­fall­inu.


Hag­fræði­deild Lands­bank­ans fjallar um þróun fast­eigna­verðs í dag og bendir á að hækkun fast­eigna­verðs hafi verið mesta fóðrið fyrir verð­bólg­una und­an­farin miss­eri. Raunverð hús­næðis hafi hækkað mikið að und­an­förnu en það stóð hæst í októ­ber 2007. Það þyrfti að hækka um 33 pró­sent að raun­verði til að ná þeim hæðum.

„Í maí hafði verð­bólgan verið 1,6% á síð­ustu 12 mán­uðum, en vísi­tala neyslu­verðs án hús­næð­is­kostn­aðar hafði ein­ungis hækkað um 0,3%. Þetta þýðir að raun­verð hús­næðis hefur hækkað veru­lega á síð­ustu miss­erum. Enn er þó langt í land með að raun­verðið nái þeim hæðum sem það var í á árunum 2005- 2008 og staðan nú er álíka og hún var í upp­hafi árs­ins 2005. Raun­verðið fór hæst í októ­ber 2007 og það þyrfti að hækka um 33% til þess að ná þeim hæðum,“ segja sér­fræð­ingar bank­ans.

Það er mat þeirra að nafn­verð muni hækka áfram en raun­verð muni ekki fylgja. „Ætla má að nafn­verð íbúð­ar­hús­næðis muni hækka áfram í nán­ustu fram­tíð í svip­uðum takti og verið hefur. Eft­ir­spurn virð­ist það mikil að fram­boð anni henni ekki. Þá er útlit fyrir að verð­bólga, án hús­næð­is­kostn­aðar, auk­ist tölu­vert á næstu mán­uðum og mun verða tölu­vert hærri en verið hefur á síð­ustu miss­erum. Raunverð íbúð­ar­hús­næðis mun því hækka minna en nafn­verð á næstu mán­uðum, ef fer sem horfir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár