Ólafur Ragnar: Hlutverk þjóðhöfðingja að greiða götur fyrirtækja erlendis

„Það er óhjá­kvæmi­legt, á þess­ari öld og reyndar líka á þeirri síð­ustu, að þjóð­höfð­ingjar taki þátt í að efla vel­ferð og hag­sæld og fram­farir sinnar þjóðar,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson í við­tali hjá Sölva Tryggva­syni á sjón­varps­stöð­inni Hring­braut í gær. Umfjöll­un­ar­efni þátt­ar­ins var „íslensk nýsköpun í útrás“ og spurði Sölvi for­set­ann hvort hann sé var­kár­ari en fyrir hrun við að greiða götur íslenskra fyr­ir­tækja erlendis eða hvort hann líti á það sem mik­il­vægt hlut­verk for­seta­emb­ætt­is­ins. „Við sjáum líka þjóð­höfð­ingja á Norð­ur­löndum og ann­ars staðar gera þetta í ríkum mæli. Margrét Dana­drottn­ing fer í heim­sókn til dæmis til Asíu, það eru margir tugir aðila úr dönsku við­skipta­lífi sem fylgja henni. Þegar Svía­kon­ungur fer í heim­sókn til Suður-Ameríku eru öll stærstu fyr­ir­tæki Sví­þjóðar með í för,“ sagði for­set­inn.

Ólafur Ragnar sagði að menn átti sig á að sam­keppni í ver­öld­inni sé ekki bara milli fyr­ir­tækja heldur líka milli þjóða. „Þjóð­höfð­ingar geta opnað dyr og greitt leiðir. Sá þjóð­höfð­ingi sem sæti og segð­ist bara sinna ákveðnum sviðum, menn þyrftu helst að vera menn­ing­ar­for­kálfar til þess að ég telji mér sóma til að tala við þá, ég er ekki til­búin að hjálpa ungu fólki sem er að reyna að feta nýjar brautir á vett­vangi við­skipta, og þeim mun kannski mis­takast og ég verð þá gagn­rýndur fyrir það, það væri að mínum dómi allt of þröng sýn á for­seta­emb­ættið,“ sagði for­set­inn.


Spurður hvort hann myndi gera eitt­hvað örðu­vísi í dag en áður, sagð­ist Ólafur Ragnar ekki geta svarað því og að hann hafi ekki farið yfir það. „Auðvitað var þessi reynsla mik­il­væg bæði fyrir mig og aðra. Maður horfir þá kannski gagn­rýnni augum á ýmis­legt sem menn eru að gylla.“

Gagnrýndur í Rannsóknarskýrslunni

Í 8. hefti rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis um aðdrag­anda og orsakir falls íslensku bank­anna 2008 er kafli um hlut for­seta Íslands í aðdrag­anda hruns­ins. Í skýrsl­unni er Ólafur Ragnar gagn­rýndur fyrir sinn þátt. Sagt er að for­seta­emb­ættið hafi óspart verið nýtt í þágu ein­stakra aðila til að koma á tengslum víða um lönd. „Þegar horft er til baka yfir þá atburði sem leiddu til hruns í íslensku efna­hags­lífi vekur þáttur for­seta Íslands sér­staka athygli. Þótt stjórn­kerfið í heild beri með marg­vís­legum hætti ábyrgð á því sem gerð­ist verður ekki hjá því kom­ist að skoða emb­ætti for­seta Íslands sér­stak­lega, svo hart gekk for­set­inn fram í þjón­ustu sinni við útrás­ina og þá ein­stak­linga sem þar voru fremstir í flokki. For­set­inn kom ekki að stjórn­valds­á­kvörð­unum en hann ber ásamt fleirum sið­ferði­lega ábyrgð á því leik­riti sem leikið var í kringum for­ingja útrás­ar­innar og fyr­ir­tæki þeirra. Þau reynd­ust ekki vera í neinu frekar en keis­ar­inn í sögu H.C. Andersen,“ segir í 8. hefti skýrsl­unnar. Lærdómar sem dregnir eru fram í álykt­un­ar­kafla í skýrsl­unni eru eft­ir­taldir:


• „Skýra þarf hlut­verk for­seta Íslands mun betur í stjórn­ar­skránni.


• Setja þarf reglur um hlut­verk og verk­efni for­seta Íslands og sam­skipti hans við önnur ríki.


• Æskilegt væri að for­seta­emb­ættið setti sér siða­reglur þar sem meðal ann­ars yrðu ákvæði um það með hvaða hætti er eðli­legt að hann veiti við­skipta­líf­inu stuðn­ing.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár