330.610 manns búa á Íslandi

Í lok mars 2015 bjuggu 330.610 manns á Íslandi, þar af 166.170 karlar og 164.440 konur. Lands­mönnum fjölg­aði um 870 frá ára­mótum. Erlendir rík­is­borg­arar voru 25.090 og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu bjuggu 212.120 manns. Þetta kemur fram á vef Hag­stof­unnar í dag.

Frá árs­byrjun 2010 hefur íbúum fjölgað um rúm­lega þrettán þús­und á Íslandi.


Á 2. árs­fjórð­ungi 2015, frá árs­byrjun til loka mars, fædd­ust 1.050 börn, en 540 ein­stak­lingar lét­ust. Á sama tíma flutt­ust 350 ein­stak­lingar til lands­ins umfram brott­flutta. Brott­fluttir ein­stak­lingar með íslenskt rík­is­fang voru 120 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir rík­is­borg­arar voru 470 fleiri en þeir sem flutt­ust frá land­inu. Fleiri karlar en konur flutt­ust frá land­inu.

Noregur var helsti áfanga­staður brott­fluttra íslenskra rík­is­borg­ara en þangað flutt­ust 170 manns á 2. árs­fjórð­ungi. Til Dan­merkur, Noregs og Sví­þjóðar flutt­ust 480 íslenskir rík­is­borg­arar af 680 alls. Af þeim 570 erlendu rík­is­borg­urum sem flutt­ust frá land­inu fóru flestir til Póllands, 140 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir rík­is­borg­arar komu frá Danmörku (140), Noregi (120) og Svíþjóð (100), sam­tals 360 manns af 550. Pólland var upp­runa­land flestra erlendra rík­is­borg­ara en þaðan flutt­ust 340 til lands­ins af alls 1.050 erlendum inn­flytj­endum. Litháen kom næst, en þaðan flutt­ust 60 erlendir rík­is­borg­arar til lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár