Segir söluna á útgáfunni hafa komið sér mjög á óvart - hefur enn ekkert heyrt í Birni Inga

Ingimar Karl Helgason, rit­stjóri Reykja­víkur viku­blaðs, segir söl­una á útgáfu­fé­lag­inu Fótspori hafa komið sér í opna skjöldu. „Fréttir gær­dags­ins um að útgáfa blaðs­ins hefði verið seld til Vef­pressunnar komu mjög á óvart. Satt að segja hafði útgef­and­inn fyrr­ver­andi nýlega talað um að fjölga síðum í Reykja­vík viku­blaði með haustinu og hef ég heldur verið að hugsa á þeim nótum en öðrum.“

Þannig hljómar pist­ill sem Ingimar Karl skrifar inn á vef­síðu viku­blaðs­ins undir fyr­ir­sögn­inni: Kveðja frá rit­stjóra. „Það blasir við að góðir hlutir hafa verið að ger­ast á Reykja­vík viku­blaði og raunar ýmsum öðrum blöðum Fótspors­út­gáf­unnar. Svo til allir aðrir fjöl­miðlar hafa tekið upp fréttir úr næstum hverju ein­asta tölu­blaði Reykja­víkur viku­blaðs allra síð­ustu miss­erin. Viðbrögð les­enda við efn­is­tökum okkar og umfjöllun í Reykja­vík viku­blaði hafa jafn­framt verið mjög mikil,“ skrifar rit­stjór­inn frá­far­andi.

„Yfir­leitt eru þau jákvæð og fólk hefur lýst mik­illi ánægju með gagn­rýna, mál­efna­lega og sann­gjarna blaða­mennsku. Viðbrögð úr sumum afkimum ráð­andi afla hafa líka styrkt okkur í þeirri trú að við höfum verið að gera eitt­hvað sem skiptir máli. Ég held satt að segja að þessi stað­reynd hafi gert að verkum að útgáfu­fyr­ir­tækið Fótspor hafði eitt­hvað til að selja þegar allt kemur til alls, hvernig sem á það er litið.“

Í sam­tali við Kjarnann kveðst Ingimar Karl ekk­ert hafa heyrt frá Birni Inga Hrafns­syni stjórn­ar­for­manni Vef­pressunnar, né öðrum hjá félag­inu. „Það eina sem ég veit er að frjóu og skemmti­legu tíma­bili Reykja­víkur viku­blaðs hjá útgáf­unni Fótspori er lokið. Ég veit ekki hvað tekur við. Hvorki hjá mér sjálfum, né hvað verður með blaðið. Ég frétti þetta bara í gær.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár