Ómar Valdimarsson íhugar að bjóða sig fram til forseta Íslands

Blaða­mað­ur­inn Ómar Valdi­mars­son íhugar að bjóða sig fram til emb­ættis for­seta Íslands á næsta ári, þegar yfir­stand­andi kjör­tíma­bil Ólafs Ragnars Gríms­sonar rennur sitt skeið. Þetta stað­festi Ómar við Kjarnann í kvöld.

„Það er betra að for­set­inn sam­eini þjóð­ina frekar en kljúfi hana. Þetta er orðið ágætt af hinu sama, og það er kom­inn tími til að breyta til. Svolítil auð­mýkt er af hinu góða og svo er þetta þægi­leg inni­vinna,“ segir Ómar glett­inn í sam­tali við Kjarnann aðspurður um af hverju hann íhugi að bjóða sig fram til emb­ættis for­seta Íslands. Hann ætlar ekki að tjá sig frekar um mögu­legt fram­boð að svo stöddu.

Þá hefur verið stofnuð síða á Facebook þar sem skorað er á Ómar að bjóða sig fram, undir yfir­skrift­inni „Ómar Valdi­mars­son á Bessa­staði 2016,“ sem 34 hafa lækað til þessa.

Ómar Andersen Valdi­mars­son hefur um ára­bil starfað sem blaða­maður, almanna­teng­ill og upp­lýs­inga­full­trúi Rauða kross­ins víðs­vegar um heim­inn. Hann er giftur Dagmar Agn­ars­dóttur og á með henni fjögur upp­komin börn. Ómar hefur að und­an­förnu stundað masters­nám í mann­fræði við Háskóla Íslands og hyggur á útskrift þaðan fyrir for­seta­kosn­ing­arnar á næsta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár