Topp 10: Íslenskar tónlistarhátíðir

Tón­list­ar­há­tíðir eru góð skemmtun. Á Íslandi hefur á síð­ustu árum fjölgað ört í flóru tón­list­ar­há­tíða, og nú ættu flestir að geta að minnsta kosti fundið sér eina hátíð hér á landi sér að skapi. Nú þegar þorri land­ans þeys­ist um þjóð­vegi landsin í leit að sól­inni, þegar Bræðslan stendur sem hæst á Borg­ar­firði eystri og stytt­ist í Þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum, er ekki úr vegi að fara yfir tíu bestu tón­list­ar­há­tíðir lands­ins.

10. Músíktilraunir


Árið 1982 voru Mús­íktil­raunir haldnar í fyrsta skiptið í félags­mið­stöð­inni Tónabæ. Vin­sæld­irnar juk­ust jafnt og þétt og síðan 2001 hefur hátíðin verið haldin í stærra hús­næði víðs vegar um Reykja­vík. Mús­íktil­raunir eru vett­vangur fyrir ungt tón­list­ar­fólk (13-25 ára) til að koma sér á fram­færi. Þetta er auð­vitað keppni og verð­launin hafa alltaf verið tímar í hljóð­veri og ýmis tón­list­ar­út­bún­aður.

Úrslit eru ráðin bæði af áhorf­endum og dóm­nefnd sem skipuð er fjöl­miðla­fólki. Ekki hafa allar sig­ur­hljóm­sveitir keppn­innar meikað það en margar af stærstu hljóm­sveitum lands­ins stigu sín fyrstu skref í Mús­íktil­raunum. Má þar nefna Maus, Botn­leðju, Mínus, XXX Rottweiler Hunda, Agent Fresco og risa­sveit­ina Of Monsters and Men.

9. Atlavík ´84


Atla­vík­ur­há­tíðir voru haldnar um versl­un­ar­manna­helgi um ára­tuga­skeið á sein­ustu öld. Þessar hátíðir voru ekki mikið frá­brugðnar öðrum úti­há­tíðum á þessum tíma nema að því leyti að hljóm­sveitin Stuðmenn hélt hljóm­sveita­keppni þar um skeið á níunda ára­tugnum.

Eitt árið, 1984, mun þó alltaf standa upp úr og hefur fengið nokkuð goð­sagna­kenndan blæ. Ekki fyrir þær sakir að hljóm­sveitin Fásinna vann hljóm­sveita­keppn­ina heldur vegna þess að bít­ill­inn Ringo Starr veitti þeim verð­launin, 50 þús­und kall. Ringo steig svo á svið fyrir framan 6000 manns ásamt Stuð­mönnum og Gunnari Þórð­ar­syni og tóku þeir lagið Jonny B. Goode eftir Chuck Berry og hlýtur það að vera einn und­ar­leg­asti gjörn­ingur tón­list­ar­sög­unnar.

8. Secret Solstice


Tón­list­ar­há­tíðin Secret Solstice er að miklu leyti stíluð inn á erlenda ferða­menn. Á hátíð­inni er hægt að kaupa allskynns ferðir, eins og til dæmis rútu­ferð um Gullna Hringinn, nátt­úru­skoð­un­ar­ferð í þyrlu og partí á jarð­hita­svæði nálægt Flúðum. Mikið er gert úr mið­næt­ur­sól­inni og íslenska sumr­inu og öll sviðin á hátíð­ar­svæð­inu hafa vísun í heiðni.

Tón­listin hefur aftur á móti ekki mjög þjóð­legan blæ heldur ræður raf­tón­list og hip-hop ríkjum. Stór hluti tón­list­ar­fólks­ins kemur að utan, bæði heims­þekktir lista­menn á borð við Massive Attack, Kelis, Busta Rhymes og Wu-Tang Clan og svo fjöld­inn allur af lítt þekkt­ari plötu­snúðum og röpp­urum. Hin ört vax­andi íslenska rapp­sena hefur notið góðs af hátíð­inni og fengið veg­legan sess þar.

7. Rokkjötnar


Rokkjötnar eru eins dags tón­leika­há­tíð þar sem þung­arokk er í for­grunni. Rokkið hefur verið í mik­illi sókn hér á Íslandi (sem og í heim­inum öllum) und­an­farin ár og haustið 2012 var hátíðin haldin í fyrsta skiptið, þá í Kaplakrika í Hafn­ar­firði. Stærstu þung­arokks­hljóm­sveitir lands­ins eins og Skálmöld, HAM og Sól­stafir tróðu upp við góðan orð­s­týr.

Ári seinna þurfti þó að hætta við hátíð­ina vegna slakrar miða­sölu. Mörgum þótti aðal­númer kvöld­ins, Bubbi Morthens, ekki eiga heima þarna. Aðstand­endur hátíð­ar­innar gáfust þó ekki upp og haustið 2014 stigu rokkjötnar aftur á svið, þá í Vodafone höll­inni. Hátíðin hefur heldur betur fengið byr í seglin og nú í haust mun ein af stærri þung­arokks­hljóm­sveitum heims, Mastodon frá Banda­ríkj­unum, troða upp á hátíð­inni. Rokkið lifir.

6. Aldrei fór ég suður


Þessi krútt­lega hátíð hefur verið haldin á Ísafirði um páska síðan árið 2004. Hug­mynd­ina fengu Ísfirð­ing­arnir Mugison og faðir hans Muggi en ótal manns koma að skipu­lagn­ingu hátíð­ar­innar. Kostnaði er alltaf haldið í lág­marki og tón­list­ar­menn­irnir spila frítt. Það er lögð mikil áhersla á að fjöl­skyldan geti öll mætt og að allir finni eitt­hvað við sitt hæfi.

Lands­frægir tón­list­ar­menn úr öllum geirum spila þarna ásamt lítt þekkt­ara vest­firsku tón­list­ar­fólki. Þarna er hægt að sjá dauðarokk, harm­on­ikku­leik, teknó, trú­badora, rapp, sveita­ball­a­popp og svo er auð­vitað barna­ball. Mikið er gert úr þætti Ísa­fjarðar og Vest­fjarð­anna allra á hátíð­inni og mætti segja að hún sé orðin nokk­urs konar bæj­ar­há­tíð eða að minnsta kosti mjög góð kynn­ing á staðnum.

5. Uxi ´95


Uxi var metn­að­ar­full og alþjóð­leg tón­list­ar­há­tíð þar sem fók­us­inn var á raf­tón­list. Hátíðin var haldin á Kirkju­bæj­ar­klaustri um versl­un­ar­manna­helg­ina og fjöldi heims­frægra lista­manna boð­uðu komu sína. Aðstand­endur gerðu þó í því að aðgreina sig frá öðrum úti­há­tíðum og reyndu að höfða sér­stak­lega til erlendra ferða­manna.

Hátíðin átti að verða mikil land­kynn­ing og erlendir fjöl­miðl­arisar á borð við MTV og Volume sýndu henna áhuga. Tón­leik­arnir tók­ust margir hverjir ágæt­lega upp en mikið var um vanda­mál. Tölvu­kerfið bil­aði hjá Björk, The Prodigy sátu lengi fastir í toll­inum, Atari Teenage Riot þurftu að gista í tjaldi og fleira. Hátíðin var illa sótt og mikið um landa­drykkju. Hún fékk líka stimpil á sig fyrir að vera eit­ur­lyfja­há­tíð. Hún var því ekki haldin aftur árið eftir eins og til stóð.

4. Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum


Þjóð­há­tíð var fyrst haldin í Eyjum á 1000 ára afmæli Íslands­byggðar árið 1874 en hefur verið haldin árlega síðan 1901 um versl­un­ar­manna­helg­ina. Upp­haf­lega var þetta fyrst og fremst íþrótta­há­tíð og enn sér íþrótta­fé­lag bæj­ar­ins, ÍBV um hana. En smátt og smátt þró­að­ist hún í eina mestu tón­list­ar­há­tíð lands­ins.

Hefðir skipta miklu máli á hátíð­inni og gefa henna mik­inn sjarma. Sérstakt þjóð­há­tíð­ar­lag sem samið er á hverju ári, brekku­söng­ur­inn, hvítu tjöldin, flug­elda­sýn­ingin, brennan og fleira. Hátíðin hefur aldrei fallið niður, ekki einu sinni eftir Heima­eyj­ar­gosið 1973 en þá var hún ein­fald­lega færð á annan stað á eyj­unni. Um 16.000 manns sækja hátíð­ina á hverju ári og er hún yfir­leitt stærsta úti­há­tíð sum­ars­ins. Flest stærstu nöfn íslenskrar tón­list­ar­sögu hafa spilað á hátíð­inni.

3. Eistnaflug


Eistna­flug er þung­arokks­há­tíð sem hefur verið haldin á Nes­kaups­stað í júlí síðan árið 2005. Upp­haf­lega var þetta eins dags hátíð en er nú haldin yfir þrjá daga og vin­sæld­irnar eru orðnar tölu­verðar. Íbúa­fjöldi bæj­ar­ins er um 1500 sálir en um tvö­föld sú tala er í bænum á meðan hátíðin stendur yfir.

Meiri­hlut­inn af hljóm­sveit­unum eru inn­lendar en þó hafa þó nokkur erlend bönd stigið á svið. Má þar helst nefna Napalm Death, Behemoth, At the Gates og Carcass. Þó að mörgum kunni að finn­ast síð­hærðir, svart­klæddir og flúraðir gestir hátíð­ar­innar víga­legir þá eru þetta hin vænstu skinn og fram­kvæmd hátíð­ar­innar er öðrum til fyr­ir­myndar. Slagorð hátíð­ar­innar er fyrir löngu orðið frægt: Ekki vera fáviti! …..og fólk hlýðir því.

2. Bræðslan


Í júlí er Bræðslan haldin í gam­alli síld­ar­vinnslu í einum af minnstu og afvikn­ustu bæjum lands­ins, Borg­ar­firði Eystri. Þar búa um 100 manns en þegar hátíðin stendur yfir tífald­ast mann­fjöld­inn í bænum. Bræðslan var fyrst haldin árið 2005 og steig þá Magni Ásgeirs­son, Borg­firð­ingur og Bræðslu­stjóri, á svið ásamt Emilíönu Torrini.

Hátíðin hefur verið haldin á hverju ári síðan og eft­ir­sótt að spila þar. Ekki bara af íslenskum tón­list­ar­mönnum heldur hafa stór erlend nöfn á borð við Damien Rice, Glen Hansard og Belle & Sebast­ian spilað þar. Það hefur loðað við hátíð­ina að vera svo­lítið arty og öðru­vísi og tón­list­ar­menn­irnir bera svo­lít­inn keim af því. Nálægðin við þennan litla bæ og íbú­ana og fjar­lægðin frá umheim­inum gerir Bræðsl­una að mjög sér­stakri reynslu fyrir hátíð­ar­gesti.

1. Iceland Airwaves


Hátíðin var fyrst haldin í flug­skýli á Reykja­vík­ur­flug­velli árið 1999. Síðan hefur hún vaxið mjög og er nú haldin á hinum ýmsu skemmti­stöðum í Reykja­vík á hverju ári í októ­ber eða nóv­em­ber­mán­uði. Á hátíð­inni spila bæði inn­lendir og erlendir lista­menn og áhugi erlendra fjöl­miðla og tón­list­ar­út­gef­enda á hátíð­inni er mik­ill.

Um 2000 erlendir ferða­menn koma árlega á hátíð­ina og um helm­ingur þeirra eru úr tón­list­ar­iðn­að­inum. Hún er því notuð sem gluggi til að aug­lýsa íslenska tón­list og menn­ingu. Meðal heims­þekktra lista­manna sem spilað hafa á hátíð­inni eru Björk, Sigur Rós, Sinead O´Connor, Fatboy Slim, Flaming Lips, Suede og Kraftwerk. Margir aðrir nýta sér vin­sældir Airwaves og eru fjöl­margir tón­leikar víða um borg­ina á sama tíma, þ.e. svo­kall­aðir off-venue tón­leikar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár