Skattakóngurinn 2015 seldi útgerðina og var Eyjamaður ársins

Vest­manna­ey­ing­ur­inn Þórður Rafn Sig­urðs­son, skatta­kóngur Íslands árið 2015, seldi á síð­asta ári útgerð­ina Dala-Rafn ehf. til Ísfélags Vest­manna­eyja, útgerð­ar­fé­lags Guð­bjargar M. Matth­í­as­dóttur. Við­skiptin voru gerð í febr­úar 2014 og sam­þykkt af Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu í mars það ár. Dala-Rafn gerði út tog­skipið Dala-Rafn VE 508 og afla­heim­ildir félags­ins þá voru tæp 1.600 þorskígildistonn.

Samkvæmt lista Rík­is­skatt­stjóra yfir þá ein­stak­linga sem greiða hæstu opin­beru gjöldin í ár vegna tekna í fyrra, greiðir Þórður Rafn um 672 millj­ónir króna í opin­ber gjöld. Guðbjörg M. Matth­í­as­dóttir er einnig á lista Rík­is­skatt­stjóra, hún greiðir um 127 millj­ónir króna í opin­ber gjöld.

Þórður Rafn var í byrjun árs 2014 val­inn Eyja­maður árs­ins af fjöl­miðl­inum Eyja­fréttum í Vest­manna­eyjum. Í frétt Eyja­frétta frá þeim tíma segir að Þórður Rafn og eig­in­kona hans, Ingi­gerður R. Eymunds­dóttir, hafi komið upp mynd­ar­legu útgerð­ar­safni, ásamt því að reka far­sæla útgerð í fjölda ára. „Nú síð­ast keyptu hjónin mikið safn lík­ana Eyja­bát­anna sem Sig­tryggur Helgason hafði safna saman þannig að safn þeirra hjóna er nú hið mynd­ar­leg­asta,“ segir í frétt­inni.

Fjallað var um útgerð­ar­safn Þórðar Rafns í Morg­un­blað­inu árið 2006. Fram kom að hann hafi það ár starfað við útgerð í tæp 32 ár. Lengst af var hann skip­stjóri á Dala-Rafni, byrj­aði að starfa sem skip­stjóri 19 ára gam­all, en Eyþór sonur hans tók við því starfi. „Þórður Rafn lætur sér ekki nægja að stýra útgerð og skreppa á sjó­inn þegar þannig vill til, heldur hefur hann komið upp vísi að sjó­minja­safni eða öllu heldur tækja­safni en hann hefur safnað tækjum sem notuð voru í skipum á síð­ustu öld,“ segir í umfjöllun Morg­un­blaðs­ins frá 2006.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár