Tölvuleikjafyrirtæki Íslendinga fær fjármagn frá sjóði í London

Íslenska leikja­fyr­ir­tækið Klang Games, fram­leið­andi óút­komna tölvu­leiks­ins ReR­unn­ers fyrir snjall­síma og snjall­tæki, hefur fengið fjár­magn frá fjár­fest­inga­sjóð­inum London Venture Partners. Að baki Klang Games standa þrír Íslend­ingar, þeir Oddur Snær Magn­ús­son sem jafn­framt er fram­kvæmda­stjóri, Ívar Emilsson for­rit­ari, og lista­mað­ur­inn og hönn­uð­ur­inn Mundi. Þeir eru búsettir í Berlín. Í færslu Wall Street Journal kemur fram að fjár­fest­ing Lund­ún­ar­sjóðs­ins í Klang Games nemi um 630 þús­und doll­urum, jafn­virði um 85 millj­óna króna.

London Venture Partners sér­hæfir sig í fjár­fest­ingum í tölvu­leikja­fyr­ir­tækjum og kom meðal ann­ars snemma að finnska fyr­ir­tæk­inu SuperCell, fram­leið­anda leikj­anna Clash of Clans og Boom Beach, að því er fram kemur í umfjöllun frétta­síð­unnar Norð­ur­skautið um málið. Báðir leik­irnir hafa náð miklum vin­sældum á snjall­tækjum.

Í til­kynn­ingu á vef­síðu Klang Games segir Oddur að þeir séu afar stoltir af sam­starfi sínu við London Venture Partners, sem búi yfir mik­illi reynslu og inn­sýn í heim tölvu­leikja.

Klang Games var stofnað árið 2013. Unnið er að útgáfu leiks­ins ReR­unn­ers fyrir snjall­tæki en stefnt er að útgáfu leiks­ins í haust. Fram kemur í umfjöllun Norð­ur­skauts­ins um leik­inn, sem birt­ist í byrjun júní, að leik­ur­inn sé fjöl­spil­un­ar­leikur þar sem kepp­endur muni keppa í hlaupi sín á milli og nota hæfni, kænsku og sprengjur til að ná yfir­hönd­inni.


Welcoming @KlangGames to the LVP family! http://t.co/QvUSYsDTpl #seedround pic.twitter.com/ZSLz4n3Zda


— London VP (@LondonVP) July 22, 2015

Hér að neðan má sjá skjá­skot úr ReR­unn­ers, sem fengin voru af heima­síðu Klang Games.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár