Miklu færri atvinnulausir í ár en í fyrra

Að jafn­aði voru 202.200 manns á aldr­inum 16 til 74 ára á vinnu­mark­aði í júní, sem jafn­gildir 86,6 pró­sent atvinnu­þátt­töku. Af þeim voru 196.400 starf­andi og 5.800 án vinnu og í atvinnu­leit. Atvinnu­leysi var því 2,9 pró­sent í mán­uð­inum, sam­kvæmt vinnu­mark­aðs­rann­sókn Hag­stof­unnar fyrir júní­mánuð. Fram kemur í frétt Hag­stof­unnar að sam­an­burður mæl­inga fyrir júní 2014 og 2015 sýnir að atvinnu­þátt­taka jókst um 1,3 pró­sentu­stig og hlut­fall starf­andi fólks af mann­fjölda jókst um 2,7 stig. Fara þarf aftur til júní 2008 til að finna hærra hlut­fall starf­andi fólks.

Atvinnu­lausum fækk­aði milli ára um 3.200 manns en alls voru 5.800 atvinnu­lausir í júní síð­ast­liðnum. Hlutfall atvinnu­leysis er 1,7 pró­sentu­stigum lægra í júní 2015 en júní 2014. Ef rýnt er í tölur Hag­stof­unnar má sjá að atvinnu­leysi hefur ekki verið lægra síðan í októ­ber árið 2008. Þá mæld­ist atvinnu­leysi 2,4 pró­sent. Frá þeim tíma hefur atvinnu­leysi þó nokkrum sinnum mælst á bil­inu 3,1 til 3,5 pró­sent. Tölu­verðar árs­tíð­ar­sveiflur eru í atvinnu­leysis­tölum, eins og seinna grafið hér að neðan sýnir, minnst er það jafnan á sumrin.

Fyrra grafið sýnir þróun á fjölda atvinnu­lausra og mælt atvinnu­leysi í júní­mán­uði á árunum 2008 til 2015.

atvinnu­leysi júní hvert ár

|

Create infographics


Vegna mik­illa árs­tíð­ar­sveiflna eru birtar tölur um árs­tíð­ar­leið­rétt atvinnu­leysi. „Árs­tíða­leið­rétt­ing er töl­fræði­leg aðferð sem leit­ast við að aðgreina árs­tíða­bundnar sveiflur frá óreglu­legum breyt­ingum. Árs­tíða­leið­rétt­ingin gerir sam­an­burð á milli sam­liggj­andi mán­aða mun raun­hæf­ari og segir betur um hvert töl­urnar stefna,“ segir Hag­stofan.

Fram kemur á vef Hag­stof­unar að árs­tíð­ar­leið­rétt atvinnu­leysi mæld­ist 3,2 pró­sent í júní. Samkvæmt árs­tíða­leið­rétt­ingu var fjöldi fólks á vinnu­mark­aði 190.800 í júní 2015 sem jafn­gildir 83,2% atvinnu­þátt­töku, sem er 0,2 pró­sentu­stigum hærri en hún var í maí. Fjöldi atvinnu­lausra í júní var sam­kvæmt árs­tíða­leið­rétt­ingu 6.100 sem er fækkun um 2.500 manns frá því í maí. Hlutfall atvinnu­lausra minnk­aði úr 4,4% í maí í 3,2% í júní. Leiðrétt hlut­fall starf­andi fólks í júní 2015 var 80,5%, sem er aukn­ing um 1,3 pró­sentu­stig frá því í maí. Leitni vinnu­afl­stalna sýnir að atvinnu­leysi hefur lækkað um 0,2 pró­sentu­stig sé horft til síð­ustu sex mán­aða og um 0,8 stig á síð­ustu tólf mán­uðum. Hlutfall starf­andi síð­ustu sex mán­uði hefur auk­ist um 0,6 pró­sentu­stig og um 1,2 stig síð­ustu tólf mán­uði.

Júní 2015 nær til fjög­urra vikna, frá 1. til 29. júní. Úrtakið var 1.212 ein­stak­lingar á aldr­inum 16–74 ára sem valdir voru af handa­hófi úr þjóð­skrá. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis reynd­ist nettóúr­takið 1.193 ein­stak­lingar. Alls feng­ust not­hæf svör frá 939 ein­stak­lingum sem jafn­gildir 78,7% af end­an­legri svörun. Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mán­að­ar­legra nið­ur­staðna um atvinnu­þátt­töku eru ±2,0, hlut­fall starf­andi ±2,2 og atvinnu­leysi ±1,2. Allar fjölda­tölur eru afrún­aðar að næsta hundraði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár