Verðbólgan er 1,9 prósent - Undir markmiði átján mánuði í röð

Vísitala neyslu­verðs miðað við verð­lag í júlí hækk­aði um 0,16 pró­sent frá fyrri mán­uði. Án hús­næðis hækk­aði vísi­talan um 0,03 pró­sent. Vegna sum­ar­út­sala lækk­aði verð á fatn­aði og skóm um 11,1 pró­sent frá fyrri mán­uði og hafði áhrif til lækk­unar á vísi­töl­unni um 0,5 pró­sent. Flug­fjar­gjöld til útlanda hækk­uðu um 32,7 pró­sent og hafði 0,45 pró­sent áhrif til hækk­unar vísi­töl­unnar. Kostn­aður vegna búsetu í eigin hús­næði hækk­aði um 0,8 pró­sent sem hafði áhrift til 0,12 pró­sent hækk­unar.

Hag­stofan birti í dag upp­færða vísi­tölu neyslu­verðs sam­kvæmt mæl­ingum Hag­stof­unnar á verð­lags­breyt­ingum í júlí. Síð­ast­liðna tólf mán­uði hefur vísi­talan hækkað um 1,9 pró­sent. Án hús­næðis hefur vísi­talan hækkað á sama tíma um 0,4 pró­sent. Tólf mán­aða breyt­ing vísi­tölu neysl­verðs mælir verð­bólgu í land­inu, það er almenna hækkun verð­lags.

Verð­bólga hefur nú verið undir 2,5 pró­senta verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans síð­ustu átján mán­uði, eða frá því í febr­úar 2014. Án hús­næð­isliðar, sem mælir kostnað við að kaupa og eiga hús­næði, hefur á þessu tíma­bili stundum mælst verð­hjöðnun. Hús­næð­is­hækk­anir hafa því verið helsti drif­kraftur verð­bólg­unnar und­an­farin miss­eri. Hér að neðan má sjá verð­bólg­una í hverjum mán­uði, með og án hús­næð­isliðar, frá því í árs­byrjun 2014 til júlí 2015.


asdf

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár