Laun hafa hækkað um sjö prósent og kaupmáttur launa um 5,5 prósent

Laun á Íslandi hækk­uðu um 2,3 pró­sent milli maí og júní, sam­kvæmt launa­vísi­tölu Hagstofu Íslands.Vísi­talan hefur ekki hækkað jafn mikið milli mán­aða síðan í febr­úar 2013. Á síð­ast­liðnum tólf mán­uðum hefur launa­vísi­talan hækkað um 7,1 pró­sent en vísi­talan byggir á gögnum úr launa­rann­sókn Hagstofu Íslands.

Á sama tíma og launa­vísi­talan hækk­aði um 2,3 pró­sent þá hækk­aði kaup­máttur launa um 2,0 pró­sent frá fyrri mán­uði. Síðustu tólf mán­uði hefur vísi­tala kaup­máttar launa hækkað um 5,5 pró­sent.Vísitala kaup­máttar launa er reiknuð út frá vísi­tölu launa og neyslu­verðs­vísi­töl­unni, sem mælir verð­bólgu í land­inu. Almennt eykst kaup­máttur launa þegar laun hækka umfram verð­lag en lækka þegar verð­bólga er meiri en launa­hækk­anir.

Hér að neðan má sjá hvernig vísi­tala launa og vísi­tala kaup­máttar hefur þró­ast frá því í júní 2014. Vísi­töl­urnar eru stilltar í gildið 100 í upp­hafi tíma­bils­ins og sýna því hlut­falls­lega hækkun frá júní 2014.


Fram kemur í frétt Hag­stof­unnar um málið í dag að í vísi­töl­unum gætir áhrifa nýgerðra kjara­samn­inga á almennum vinnu­mark­aði sem und­ir­rit­aðir voru í maí síð­ast­liðnum. Þar var kveðið á um sér­staka hækkun kaup­taxta, breyt­inga á launa­töflum auk sam­komu­lags um launa­þró­un­ar­trygg­ingu að lág­marki 3,2 pró­sent frá 2015. Þá gætir einnig áhrif vegna kjara­samn­inga ríkis og Kenn­ara­sam­bands Íslands ann­ars vegar og Lækna­fé­lags Íslands hins vegar sem und­ir­rit­aðir voru á öðrum árs­fjórð­ungi 2014 og í árs­byrjun 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár