Borgin bannar stórar rútur í miðborginni

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri til­kynnti í dag að ákvörðun hafi verið tekin um að banna stórar rútur í mið­borg Reykja­víkur. Frá þessu greinir borg­ar­stjóri á Twitter og Instagram.


Á mynd­inni hér að ofan, sem Dagur birti í dag á Instagram, má sjá stað­setn­ingu fyr­ir­hug­aðra sleppi­svæða í jaðri mið­borg­ar­innar þar sem ferða­menn geta stigið um borð og yfir­gefið rútur sem eru lengri en átta metrar að lengd.

Í sam­tali við RÚV segir borg­ar­stjóri að fyrir liggi sam­komu­lag sem tak­marki umferð rútu­bif­reiða um mið­borg­ina, og nú sé ein­ungis beðið eftir því að lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins stað­festi það.






„Við ætlum að tak­marka umferð allra bíla sem eru meira en 8 metra langir. Það mun gilda um mest allt mið­borg­ar­svæðið. Það er býsna góð sam­staða milli okkar og lög­regl­unnar í þessu,“ segir Dagur í sam­tali við RÚV.

Aðspurður um hvenær aðgerða sé að vænta, vildi Dagur ekki nefna nákvæma dag­setn­ingu en sagði að haf­ist yrði handa á næst­unni. Þá benir hann á að borgin hafi gefið út fyr­ir­mæli í haust um umferð rútu­bif­reiða um mið­borg­ina, sem greini­lega hafi ekki verið nóg. Nú verði bannið skil­greint nákvæm­lega og skiltum komið upp þar sem við á í mið­borg­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár