Leiguverð lækkaði í júní - Mikill munur eftir svæði og stærð húsnæðis

Leigu­verð íbúð­ar­hús­næðis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu lækk­aði tölu­vert í síð­asta mán­uði. Milli maí og júní lækk­aði leigu­verð um 1,9 pró­sent, sam­kvæmt mæl­ingum Þjóð­skrár Íslands á leigu­verði. Vísitala leigu­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur lækkað um 0,6 pró­sent á síð­ustu þremur mán­uðum en hækkað um 3,3 pró­sent á síð­ustu tólf mán­uðum. Grafið hér að neðan er unnið úr gögnum Þjóð­skrár og sýnir hvernig verð hefur breyst síð­ustu tólf mán­uði.


Upp­lýs­ingar um breyt­ingar á vísi­tölu leigu­verðs fyrir apríl, maí og júní voru birtar síð­asta föstu­dag á vef Þjóð­skrár. Þær voru ekki birtar fyrr vegna verk­falls lög­fræð­inga hjá Sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Fram kemur í frétt Þjóð­skrár að talna­upp­lýs­ingar um leigu­verð í júní eru unnar upp úr 480 leigu­samn­ingum sem þing­lýst var í júní 2015.

Mikill munur eftir svæðum og gerð í Reykjavík


Þegar rýnt er nánar í gögn Þjóð­skrár eftir stærð hús­næðis og svæðum sést að mik­ill munur er á verð­breyt­ingum síð­asta árið. Samkvæmt gögn­unum hefur meðal-leigu­verð á tveggja her­bergja íbúð í Reykja­vík vestan Kringlu­mýr­ar­brautar og á Sel­tjarn­ar­nesi hækkað um 6,4 pró­sent milli júní 2014 og júní 2015. Meðal-leigu­verð á þriggja her­bergja íbúð á sama svæði hefur lækkað um rúmt pró­sent og leigu­verð á fjög­urra til fimm her­bergja íbúð á sama stað hefur hækkað um rúm tíu pró­sent, sam­kvæmt þing­lýstum samn­ingum.

Leigu­verð á tveggja her­bergja íbúð í Reykja­vík milli Kringlu­mýr­ar­brautar og Reykja­nes­brautar var um 14,7 pró­sentum hærra í júní 2015 en í júní 2014. Þriggja her­bergja íbúð á þessu svæði hefur á tíma­bil­inu hækkað um aðeins 1,6 pró­sent sam­kvæmt gögnum Þjóð­skrár og leigu­verð á fjög­urra til fimm her­bergja íbúð á þessu svæði hefur hækkað um 13 pró­sent milli ára að með­al­tali.

Lækkun sögð eðlileg


Fjallað er um lækkun vísi­tölu leigu­verðs í júní í Morg­un­blað­inu í dag og er haft eftir Svani Guð­munds­syni, leigu­miðl­ara, að þró­unin sé eðli­leg. „Þetta kemur ekki mikið á óvart af feng­inni reynslu, bæði á þessum tíma og líka vegna þess að fólk ræður illa við leig­una. Það er minni eft­ir­spurn á sumrin en með haustinu eykst hún. Þegar skól­arnir byrja og þegar nær dregur ára­mótum eykst hún aftur,“ segir hann í sam­tali við Morg­un­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár