Starfsfólk Þjóðskrár vinnur á skjalabunkunum - Met slegin í fjölda viðskipta

Samtals var 352 kaup­samn­ingum þing­lýst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í síð­ustu viku, frá 10. júlí til 16. júlí. Þar af voru 268 samn­ingar um eignir í fjöl­býli, 65 samn­ingar um sér­býli og 19 samn­ingar um ann­ars konar eignir en íbúð­ar­hús­næði. Heild­ar­veltan var 13.042 millj­ónir króna og með­al­upp­hæð 37,1 milljón króna. Þetta kemur fram á vef Þjóð­skrár í dag.

Um er að ræða met­fjölda kaup­samn­inga og veltu á einni viku. Skýr­ingin er fyrst og fremst afstaðið verk­fall lög­fræð­inga hjá sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en engum samn­ingum var þing­lýst í um tíu vikur á meðan það stóð yfir. Nú er þing­lýst á meiri hraða en áður, til þess að vinna á þeim skjölum sem söfn­uð­ust meðan á verk­falli stóð. Frétta­stofa RÚV greindi frá því í dag að fjög­urra daga skammti af skjölum var þing­lýst síð­asta laug­ar­dag. Því má búast við að tölur yfir fast­eigna­mark­að­inn, sem birtar eru viku­lega á vef Þjóð­skrár, verði áfram háar á næstu vikum hvað höf­uð­borg­ar­svæðið varðar.


Fram kemur í frétt RÚV að um tíu manns hafi verið ráðnir til þess að hjálpa við að vinda ofan af þeim mikla fjölda sem bíða afgreiðslu hjá emb­ætt­inu. Misvel gengur að kom­ast í gegnum skjala­bunk­ana og enn bíður mik­ill fjöldi skjala þing­lýs­inga.


fjöldi kaup­samn­inga 16.júlí

|

Create infographics

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár