Byggingarkostnaður rýkur upp - Vinnuafl er ríflega 20 prósent dýrara en fyrir ári

Kostn­aður við bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eins og hann mælist hjá Hagstofu Íslands, hefur rokið upp. Ástæðan er fyrst og fremst mikil hækkun á launum iðn­að­ar­manna og verka­fólks í bygg­ing­ar­iðn­aði. Samtals hækk­aði vísi­tala bygg­ing­ar­kostn­aðar um 3,3 pró­sent í júlí frá fyrri mán­uði. Kostn­aður við vinnu­afl hækk­aði um 11,2 pró­sent milli mán­aða. Á síð­ustu tólf mán­uðum hefur vísi­talan hækkað um 6 pró­sent og kostn­aður við vinnu­afl, sem er einn und­ir­liða vísi­töl­unnar, hefur hækkað um heil 22,5 pró­sent.

Hagstofa Íslands birtir mán­að­ar­lega vísi­tölu bygg­ing­ar­kostn­aðar. Vísi­töl­unni er ætlað að sýna breyt­ingar á kostn­aði við bygg­ingu ákveð­innar teg­undar íbúð­ar­hús­næðis, 18 íbúða fjöl­býl­is­hús, á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Uppfærða vísi­talan sem Hag­stofan birti í dag gildir fyrir ágúst­mánuð.

Á graf­inu hér á neðan má sjá hvernig bygg­ing­ar­kostn­aður hefur þró­ast síð­ustu tólf mán­uði, frá sept­em­ber 2014 til ágúst 2015. Vísi­talan er stillt í 100 í upp­hafi tíma­bils­ins.

vísi­tala bygg­ing­ar­kostn­aðar

|

Create infographics

Af þeim fjórum reikniliðum sem mynda vísi­tölu bygg­ing­ar­kostn­aðar, þá hefur lið­ur­inn „vinna“ hækkað mest á síð­asta ári. Kostn­aður við inn­lent efni hefur hækkað um rúm tvö pró­sent, inn­flutt efni hefur lækkað um fimm pró­sent og lið­ur­inn Vélar, flutn­ingur og orku­notkun hefur hækkað um eitt pró­sent. Kostn­aður við vinnu­afl hefur á sama tíma hækkað um rúm­lega 22 pró­sent, eins og sjá má á graf­inu hér að neðan. Á því hefur und­ir­liðum vísi­töl­unnar verið stillt í gildið 100 í ágúst 2014. Grafið sýnir því hlutffalls­lega hækkun síð­ustu tólf mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár