Gísli Marteinn byrjar með nýjan sjónvarpsþátt á RÚV í haust

Fjöl­miðla­mað­ur­inn og borg­ar­full­trú­inn fyrr­ver­andi Gísli Marteinn Bald­urs­son snýr aftur á sjón­varps­skjá lands­manna í haust, þegar hann byrjar með nýjan þátt á RÚV. Vanga­veltur hafa verið uppi um hlut­verk Gísla Marteins hjá RÚV, en hann tók sér árs­leyfi frá störfum í apríl í fyrra til að setj­ast á skóla­bekk við Harvard. Þá hafði hann stýrt sjón­varps­þætt­inum Sunnu­dags­morg­unn.

Skarp­héð­inn Guð­munds­son, dag­skrár­stjóri Sjón­varps­ins, stað­festir að Gísli Marteinn sé vænt­an­legur aftur til starfa. „Hann tekur sum­part upp þráð­inn þar sem frá var horfið því í vetur mun hann stýra frétta-, dæg­ur­mála og -menn­ing­ar­tengdum spjall- og við­tals­þætti , auk þess að sinna öðrum ansi áhuga­verðum verkum,“ segir Skarp­héð­inn í sam­tali við Kjarnann.

Í beinni útsendingu á eftir fréttum


Umræddur sjón­varps­þáttur verður í beinni útsend­ingu á föstu­dags­kvöldum að loknum fréttum og hefur göngu sína í haust. „Þátt­ur­inn hefur enn ekki hlotið nafn og efn­is­tök eru enn í mótun. Við gerum þó ráð fyrir að honum muni um margt svipa til Sunnu­dags­morg­uns að upp­bygg­ingu, en stefnan er meðal ann­ars að gera upp frétta­vik­una, fjalla á upp­lýstan, opinn, aðgengi­legan og hressi­legan hátt um það sem efst er á baugi hverju sinni, jafnt í þjóð­málum sem og menn­ing­ar­líf­inu," segir Skarp­héð­inn Guð­munds­son, dag­skrár­stjóri Sjón­varps­ins.

Ekki náð­ist í Gísla Martein við vinnslu þess­arar fréttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár