Sautján fastráðnir verið reknir frá RÚV - neita að upplýsa um aðrar uppsagnir hjá félaginu

Frá því að Magnús Geir Þórð­ar­son útvarps­stjóri tók við stöð­unni hjá RÚV í lok jan­úar í fyrra, hefur sautján fast­ráðnum starfs­mönnum félags­ins verið sagt upp störfum. Magnús Geir hefur því rekið að með­al­tali hart nær einn fast­ráð­inn starfs­mann hvern þann mánuð sem hann hefur verið í starfi.

Kjarninn sendi Andreu Róberts­dóttur, sem hefur gegnt stöðu mannauðs­stjóra hjá RÚV síðan í apríl á síð­asta ári, fyr­ir­spurn þar sem óskað var eftir upp­lýs­ingum um hversu mörgum fast­ráðnum, laus­ráðnum og verk­tökum hjá félag­inu hafi verið sagt upp í tíð núver­andi útvarps­stjóra. Þá var óskað eftir að upp­lýs­ing­arnar væru sund­ur­lið­aðar eftir starfs­heitum og/eða deildum.

„Lifandi skipulagsheild“


Í skrif­legu svari mannauðs­stjóra RÚV við fyr­ir­spurn Kjarnans segir: „Sautján fast­ráðnum starfs­mönnum hefur verið sagt upp á því tíma­bili sem þú spyrð um. Meiri­hlut­inn karlar, þvert á fyr­ir­tækið.“

Þegar blaða­maður benti mannauðs­stjór­anum á að svar hennar við fyr­ir­spurn­inni væri ófull­nægj­andi, svar­aði hún: „Sem lif­andi skipu­lags­heild með árs­tíða­bundna álagstoppa er ekki við hæfi að senda lista yfir laus­ráðið starfs­fólk og verk­taka. [...] Að sund­ur­liða eftir starfs­heitum eða deildum - þá erum við komin inn á per­sónu­legri upp­lýs­ingar.“

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur tölu­verðum fjölda verk­taka og laus­ráð­inna starfs­manna hjá RÚV, sem margir hverjir hafa verið á tíma­bundnum samn­ingum til lengri og skemmri tíma, verið sagt upp störfum hjá félag­inu á und­an­förnum mán­uðum.

Skorað á stjórn RÚV að draga uppsagnir til baka


Síðustu fast­ráðnu starfs­menn­irnir til að taka poka sinn hjá RÚV voru dag­skrár­gerð­ar­kon­urnar Hanna G. Sig­urð­ar­dóttir og Sigríður St. Steph­en­sen. Stöll­urnar voru á meðal reynd­ustu dag­skrár­gerð­ar­manna stöðv­ar­innar og hafa upp­sagnir þeirra vakið hörð við­brögð.

Björg Eva Erlends­dóttir, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður RÚV og núver­andi stjórn­ar­maður, hefur til að mynda gagn­rýnt þær harð­lega í fjöl­miðlum og þá hafa þær orðið til­efni til heitra umræðna inn á lok­aðri síðu starfs­manna RÚV á Facebook, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, þar sem skorað hefur verið á stjórn RÚV að draga upp­sagn­irnar til baka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár