Tíu prósent landsmanna eru innflytjendur - Svipað hlutfall og í Danmörku

Rúmlega tíu pró­sent íbúa á Íslandi fædd­ust í öðru landi. Á lista Sam­ein­uðu þjóð­anna um hlut­fall inn­flytj­enda í löndum heims­ins er Ísland í 89. sæti af 232 ríkjum. Næst á eftir Íslandi á lista koma Belgía, Grænland og Danmörk en í síð­ast nefnda land­inu er hlut­fallið 9,9 pró­sent.

Frétta­síðan FiveT­hir­tyEight birti nýlega umfjöllun um hlut­fall inn­flytj­enda í ríkjum heims­ins sem byggir á nýj­ustu gögnun Sam­ein­uðu þjóð­anna frá 2013. Fram kemur að í heild hefur hlut­fallið lítið breyst frá 1960. Þá bjuggu 2,6 pró­sent jarð­ar­búa í öðru landi en það fædd­ist í. Sama hlut­fall árið 2013 var 3,2 pró­sent.

Efst ríkja á list­anum er Vatíkanið en allir íbúar rík­is­ins eru inn­flytj­endur, það er þeir fædd­ust í öðru ríki. Í Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­unum er hlut­fall inn­flytj­enda 83,7 pró­sent en stór hlut­fall vinnu­afls þar er frá öðrum löndum.

Anstæð­urnar eru algjörar á lista Sam­ein­uðu þjóð­anna. Í Kína, á Kúbu, í Indónesíu, á Madaga­skar og í Víetnam er hlut­fall inn­flytj­enda af íbúa­fjölda um 0,1 pró­sent.

Ef litið er sér­stak­lega til nágranna­ríkja Íslands þá er hlut­fallið efst í Svíþjóð, eða 15,9 pró­sent. Í Noregi er það 13,8 pró­sent og í Finn­landi 5,4 pró­sent. Í Danmörku er hlut­fallið 9,9 pró­sent og 10,4 pró­sent á Íslandi.

Umfjöllun FiveT­hir­tyEight.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár