Gjaldeyrir ríkisins notaður til að greiða upp Avens skuldabréfið

Rík­is­sjóður greiddi í dag upp eft­ir­stöðvar svkall­aðs Avens skulda­bréf, að fjár­hæð 192 millj­ónir evra auk vaxta. Upp­haf­legt nafn­virði bréfs­ins var 402 millj­ónir evra, gefið út árið 2010 með loka­gjald­daga 2025. Eft­ir­stöðvar skulda­bréfs­ins, jafn­virði 28,3 millj­arða króna, voru greiddar með gjald­eyr­is­inn­stæðum rík­is­sjóðs í Seðla­banka Íslands. Inn­stæð­urnar höfðu vaxið nokkuð á árinu, meðal ann­ars vegna upp­greiðslu Arion banka á víkj­andi lánum rík­is­sjóðs, sam­tals að fjár­hæð 20 millj­arðar króna.

Þetta kemur fram í frétt á vef fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins. Avens-lánið var til­komið vegna kaupa rík­is­sjóðs á eigna­vörðum skulda­bréfum Avens B.V., sem var félag í eigu gamla Lands­bank­ans. Bankinn hafði sum­arið 2008, skömmu fyrir hrunið, fengið fyr­ir­greiðslu hjá Evrópska seðla­bank­anum í Lúx­em­borg gegn veði í skulda­bréfum Avens. Eignir Avens voru fyrst og fremst íslensk skulda­bréf og varð félagið stærsti ein­staki eig­andi krónu­eigna utan Íslands.

Við banka­hrunið eign­að­ist Evrópski seðla­bank­inn kröfu á Avens og und­ir­liggj­andi krónu­eignir. Í kjöl­far sam­komu­lags Seðla­banka Íslands og rík­is­sjóðs ann­ars vegar og þrota­bús Lands­bank­ans og Seðla­banka Evrópu hins vegar, um kaup á eignum Avens, var gert sam­komu­lag við 26 íslenska líf­eyr­is­sjóði sem keyptu stóran hluta af krónu­eignum Avens gegn greiðslu í evrum. Þetta var gert í maí 2010 en við­skiptin voru á þeim tíma líf­eyr­is­sjóð­unum afar hag­stæð, það er þeir fengu mik­inn „afslátt“ af skráðu gengi krón­unnar í gjald­eyr­is­skiptum sínum. Eign­irnar sem líf­eyr­is­sjóð­irnir keyptu fyrir evrur voru skulda­bréf útgefin af rík­is­sjóði og Íbúða­lána­sjóði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár