Ríkið vill gerðardóm en hjúkrunarfræðingar ekki

Ekki er ljóst hver næstu skref verða í kjara­deilum hjúkr­un­ar­fræð­inga og íslenska rík­is­ins, eftir að hjúkr­un­ar­fræð­ingar kol­felldu nýjan kjara­samn­ing við ríkið með nærri 90 pró­sent atkvæða. Atkvæða­greiðsl­unni lauk á hádegi í dag. Ólafur G. Skúlason, for­maður Félags íslenskra hjúkr­un­ar­fræð­inga (Fíh), segir í sam­tali við Kjarnann að það sé vilji félags­ins að setj­ast aftur að samn­inga­borð­inu. Ríkið vilji aftur á móti fara með deil­urnar fyrir gerð­ar­dóm, eins og ákveðið var með lögum áður en Fíh skrif­aði undir samn­inga, sem nú hafa verið felldir.

Ólafur segir að hann hafi í kjöl­far nið­ur­stöðu atkvæða­greiðsl­unnar sett sig í sam­band við samn­inga­nefnd rík­is­ins og spurt um næstu skref.

Hann segir enn­fremur að félagið muni leita réttar síns ef þörf krefur. Spurður hvort nið­ur­staða í máli BHM gegn rík­inu, um meint ólög­mæti lög­banns á verk­falls­að­gerðir félaga BHM, geti haft for­dæm­is­gildi fyrir Félag hjúkr­un­ar­fræð­inga, segir hann að það sé ekki víst. Margt sé ólíkt, til dæmis hafi verk­fall hjúkr­un­ar­fræð­inga varið styttra og að allar und­an­þágur hafi verið nýttar. Nið­ur­staða í dóms­máli BHM gegn rík­inu liggur fyrir í dag.

„Ég bjóst ekki við svona svaka­lega afger­andi nið­ur­stöðu en það kemur mér alls ekki á óvart að samn­ing­arnir voru felldir,“ segir Ólafur, spurður hvort afger­andi nið­ur­staða atkvæða­greiðsl­unnar hafi komið honum á óvart. Eftir því sem leið frá und­ir­skrift kjara­samn­ing­anna hafi það orðið æ ljós­ara að félags­menn hyggð­ust fella þá.

Atkvæða­greiðslu lauk á hádegi í dag. Samn­ing­ur­inn var felldur með 1677 atkvæðum á móti 219, eða 88,4 pró­sentum gegn 11,6 pró­sentum. Kjörsókn var 84,8 pró­sent.

„Í kjöl­far laga­setn­ingar Alþingis, sem batt enda verk­falls­að­gerðir hjúkr­un­ar­fræð­inga, var það sam­eig­in­leg ákvörðun samn­inga­nefndar Fíh, trún­að­ar­manna­ráðs og fram­kvæmda­ráðs stjórnar félags­ins að rétt væri að gefa hjúkr­un­ar­fræð­ingum tæki­færi til að kjósa um til­boð rík­is­ins sem þá lá fyrir. Enda taldi samn­inga­nefnd Fíh að gerð­ar­dómi, sem Alþingi fól að ákvarða laun hjúkr­un­ar­fræð­ina, væru settar afar þröngar skorður,“ segir í til­kynn­ingu frá hjúkr­un­ar­fræð­ingum til fjöl­miðla í dag.

„Nið­ur­staða atkvæða­greiðsl­unnar und­ir­strikar stuðn­ing hjúkr­un­ar­fræð­inga við áherslur samn­inga­nefndar félags­ins um að stjórn­völd verði að bregð­ast við sann­gjörnum kröfum þeirra um að grunn­laun hjúkr­un­ar­fræð­inga verði sam­bæri­leg við aðrar háskóla­mennt­aðar stéttir og mark­visst verði dregið úr kyn­bundnum launa­mun. Fréttir af upp­sögnum hjúkr­un­ar­fræð­inga á síð­ustu vikum end­ur­spegla afstöðu þeirra til til­boðs rík­is­ins en ómögu­legt er að reka öfl­ugt og öruggt heil­brigð­is­kerfi án þátt­töku vel mennt­aðra hjúkr­un­ar­fræð­inga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár