Ölgerðin og Ömmubakstur hækka verð - Birgjar bera fyrir sig launahækkanir

Drykkj­ar­vörur og fleiri vörur frá Ölgerð Egils Skalla­gríms­sonar hækka um 2,9 pró­sent að með­al­tali frá 3. ágúst næst­kom­andi og kleinur, flat­kökur, brauð og fleiri vörur frá Ömmu­bakstri / Gæða­bakstri hækka um 5,2 pró­sent frá morg­un­deg­inum, 15. júlí 2015. Ástæðan er í báðum til­vikum sögð launa­hækk­anir. Auk þess segir Ölgerðin ástæð­una vera „ýmsar kostn­að­ar­hækk­anir“ og Ömmu­bakst­urs segir verð­hækk­anir á umbúðum og á aðkeyptri vinnu valda hækk­unum. Þetta kemur fram í frétt á vef­síðu Neyt­enda­sam­tak­anna, sem halda utan um verð­breyt­ingar frá birgjum til versl­ana.

„Neyt­enda­sam­tökin hafa fylgst grannt með verð­hækk­unum á mat­vörum frá birgjum og sagt frá hækk­unum jafn­óðum og sam­tökin frétta af þeim. Birgjar eru þeir aðilar sem selja versl­unum aðföng og þeim ber ekki skylda að til­kynna sér­stak­lega um verð­breyt­ingar, nema að sjálf­sögðu til þeirra sem eru í beinum við­skiptum við þá. Hér á landi á að ríkja sam­keppni með frjálsu verð­lagi, sam­keppnin t.d. á mat­vöru­mark­aði er þó mjög fábrotin og því mik­il­vægt að neyt­endur fylgist vel með verð­lagi og veiti versl­unum aðhald,“ segja Neyt­enda­sam­tökin.


Samkvæmt töflu yfir verð­breyt­ingar birgja frá 1. maí síð­ast­liðnum eru nýgerðir kjara­samn­ingar helsta ástæða verð­hækk­ana frá birgjum. Verð­hækk­anir á þessu tíma­bili eru allt frá 1,5 pró­sentum til 15 pró­sent, mestar hjá Góu-Lindu sæl­gæt­is­fyr­ir­tæki. Önnur fyr­ir­tæki sem hafa hækkað verð til versl­ana eru Nói Siríus, Myllan, Slát­ur­fé­lag Suð­ur­lands, Víf­il­fell, ÍSAM og Kökugerð HP.

Velt út í verðlag

Versl­anir bregð­ast við verð­hækk­unum frá birgjum með því að hækka vöru­verð. Kostn­að­ar­hækk­unum er þannig velt út í verð­lagið, að ein­hverju eða öllu leyti. Áhrif hækk­ana, ef fram fer sem horfir, mun gæta í verð­bólgu­mæl­ingum á næstu miss­erum.


Grein­ing­ar­að­ilar búast við að verð­bólga auk­ist tölu­vert á næstu mán­uðum. Til dæmis spáir grein­ing Íslands­banka því að verð­bólgan verði 3,3 pró­sent í árs­lok. Grein­ing­ar­deild Arion banka telur að verð­bólgan verði 2,4 pró­sent í októ­ber næst­kom­andi, meðal ann­ars vegna „mynd­ar­legra verð­lags­hækk­ana“.


Þó er ekki búist við miklum almennum hækk­unum á verð­lagi milli júní og júlí. Greining Íslands­banka því að vísi­tala neyslu­verðs hækki um 0,1 pró­sent milli mán­að­anna. Það myndi þýða að verð­bólga, sem er tólf mán­aða hækkun vísi­töl­unnar, hækki úr 1,5 pró­sentum í 1,8 pró­sent. Grein­ing­ar­deild Arion banka spáir því að vísi­tala neysðu­verðs lækki milli júní og júlí um 0,2 pró­sent, einkum vegna áhrifa sum­ar­út­sala. Engu að síður mun mat­ar­k­arfan hækka lít­il­lega, sam­kvæmt spá deild­ar­innar. „Nýverið hafa komið fram til­kynn­ingar frá birgjum um verð­hækk­anir á ýmsum vörum vegna kjara­samn­inga, hækk­unar á hrá­efni og ann­ars kostn­aðar. Okkar mat er að hækkun á ýmsum mat­vörum eins og gos­drykkum, sæl­gæti, brauði, græn­meti og kjöt­vörum komi fram í mæl­ing­unni nú í júlí­mán­uði. Þó vegur á móti að ein­hver lækkun kann að verða á kjöt­vörum vegna offram­boðs sem kann að mynd­ast eftir nokkurn kjöt­skort und­an­farið vegna verk­falla,“ segir í nýrri verð­bólgu­spá deild­ar­innar.


Hag­stofan birtir vísi­tölu neyslu­verðs fyrir júlí­mánuð þann 23. júlí næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár