Sautján hundruð manns hafa gengið úr Þjóðkirkjunni frá áramótum

Fjögur hund­ruð fleiri gengu úr Þjóð­kirkj­unni en í hana á tíma­bil­inu frá byrjun apríl til loka júní 2015, sam­kvæmt tölum Þjóð­skrár Íslands yfir breyt­ingar á trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lags­að­ild á 2. árs­fjórð­ungi. Alls yfir­gáfu 598 manns Þjóð­kirkj­una á tíma­bil­inu og 158 gengu í kirkj­una. Af þeim sem gengu úr kirkj­unni þá skráðu 124 sig í frí­kirkju, 122 í önnur skráð trú­fé­lög, 27 í lífs­skoð­un­ar­fé­lög, 306 standa eftir breyt­ingu utan trú­fé­laga og í 19 til­vikum er skrán­ingin í ótil­greint trú­fé­lag. Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins gengu 1.357 fleiri úr Þjóð­kirkj­unni en í hana. Á því tíma­bili, frá ára­mótum til 30. júní, gengu 1.706 ein­stak­lingar úr Þjóð­kirkj­unni og 309 í hana.

Í Frí­kirkj­urnar þrjár, það eru Frí­kirkj­una í Reykja­vík, Óháða söfn­uð­inn í Reykja­vík og Frí­kirkj­una í Hafn­ar­firði, gengu 89 fleiri en úr þeim á 2. árs­fjórð­ungi. Fjöldi þeirra sem gekk í önnur trú­fé­lög var 221 fleiri en gengu úr þeim. Í lífs­skoð­un­ar­fé­lagið Siðmennt gengu 43 fleiri en úr því. Nýskráðir utan félaga voru 275 fleiri en gengu í félög eftir að hafa verið utan félaga og í ótil­greint trú­fé­lag voru 188 færri skráðir en flutt­ust úr þeim flokki.


Myndin hér að neðan sýnir fjölda þeirra sem gengu í trú og lífs­skoð­un­ar­fé­lög ann­ars vegar (bláu súl­urnar) og fjölda þeirra sem gengu úr félögum hins vegar (grænu súl­urnar) á fyrri helm­ingi þessa árs.


trú­fé­lög

|

Create infographics

Í frétt Þjóð­skrár er bent á að þann 13. febr­úar síð­ast­lið­inn tóku gildi breyt­ingar á lögum um skráð trú­fé­lög sem miða að því að jafna stöðu lífs­skoð­un­ar­fé­laga á við stöðu skráðra trú­fé­laga. „Verklag við skrán­ingu á trú- og líf­skoð­un­ar­fé­lags­að­ild var breytt í kjöl­far gild­is­töku laga­breyt­ing­anna sem m.a. hafði þau áhrif að ein­stak­lingum með stöð­una ótil­greint trú- eða lífs­skoð­un­ar­fé­lag hefur fjölgað. Meg­in­breyt­ingin var að börn eru nú skráð í ótil­greint trú­fé­lag við fæð­ingu ef for­eldrar sem fara sam­eig­in­lega með for­sjá eru í sitt­hvoru trú- eða líf­skoð­un­ar­fé­lag­inu. Jafn­framt er skrán­ing erlends rík­is­borg­ara úr stöð­unni ótil­greint í til­tekið trú- eða lífs­skoð­un­ar­fé­lag á grund­velli til­kynn­ingar frá honum nú talin til breyt­inga,“ segir í frétt Þjóð­skrár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár