Á fjórða þúsund skora á stjórnvöld að ráðast í Fjarðarheiðargöng

Nú hafa ríf­lega þrjú þús­und manns ritað nafn sitt undir stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu á net­inu, þar sem skorað er á sam­göngu­yf­ir­völd að ráð­ast í gerð jarð­ganga milli Seyð­is­fjarð­ar­kaup­staðar og Fljóts­dals­hér­aðs, undir Fjarð­ar­heið­ina alræmdu, svokölluð Fjarð­ar­heið­ar­göng. Þess má geta að íbúar Seyð­is­fjarðar eru 653 tals­ins sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar.

Í áskor­un­inni er þess kraf­ist að ráð­ist verði í jarð­ganga­gerð­ina sem allra fyrst, og alls ekki síðar en við lok fram­kvæmda við Norð­fjarð­ar­göng sem eru langt komnar. „Fjöl­margar álykt­anir og áköll hafa komið frá Seyð­firð­ingum um var­an­legar sam­göngu­bætur. Ekki verður lengur unað við þær hættu­legu og óásætt­an­legu aðstæður sem eru í sam­göngu­málum Seyð­is­fjarðar,“ eins og segir í áskor­un­inni.

Eini vegurinn til og frá firðinum


Vegurinn um Fjarð­ar­heiði er eini veg­ur­inn til og frá Seyð­is­firði og liggur í 620 metra hæð yfir sjáv­ar­máli. Þar er oft mikið veðra­víti yfir vetr­ar­mán­uð­ina, og heiðin því oftar en ekki mik­ill far­ar­tálmi fyrir heima­menn, gesti fjarð­ar­ins sem og far­þega ferj­unnar Norrænu. Þá lok­að­ist heiðin ítrekað síð­ast­lið­inn vetur og stundum í nokkra daga í senn með til­heyr­andi óþæg­indum fyrir gesti og íbúa Seyð­is­fjarðar sem urðu þá innikró­aðir, til að mynda með tak­mark­aða heil­brigð­is­þjón­ustu.

Í áskor­un­inni til stjórn­valda segir enn frekar: „Seyð­firð­ingar hafa barist fyrir Fjarð­ar­heið­ar­göngum í meira en 30 ár og því löngu orðið tíma­bært að hlustað sé á neyð­aróp okkar. Seyð­firð­ingar hafa sýnt mikla bið­lund og skiln­ing á nauð­syn ann­arra jarð­ganga- og vega­fram­kvæmda í land­inu og stutt heils­hugar við þær. Nú er komið að Fjarð­ar­heið­ar­göngum.“

Veldur íbúum óþægindum og öryggisleysi


Seyð­firð­ingar segja mörg rök hníga að gerða Fjarð­ar­heið­ar­ganga, fyrir utan örygg­is­leysið sem fylgi því að eiga sífellt á hættu að eini veg­ur­inn til stað­ar­ins lok­ist á vet­urna.

Mikil atvinnu- og skóla­sókn sé yfir heið­ina í báðar áttir, og þá sé stór hluti byggð­ar­innar á Seyð­is­firði á skil­greindum ofan­flóða­svæðum. „Ef hættu­á­stand skap­að­ist og/eða snjó­flóð féllu eru Seyð­firð­ingar mjög háðir því að sam­göngur um þennan eina akveg séu greið­færar.“

Þá veigri margir sér við að leggja á heið­ina nema hún sé greið­fær, og öruggar sam­göngur frá Seyð­is­firði séu nauð­syn­legar til að kom­ast í sjúkra­flug frá Egils­stöðum eða á Fjórð­ungs­sjúkra­húsið í Nes­kaup­stað þar sem til að mynda fæð­ing­ar­deild svæð­is­ins sé til húsa.

„Heil­brigði og öryggi Seyð­firð­inga er ógnað vegna tíðrar ófærðar yfir heið­ina. Löggæsla hefur verið veru­lega skert á Seyð­is­firði og lög­reglu­stöðin hefur m.a. verið lögð niður. Byggða­þróun hefur ekki verið nógu hag­stæð. Óvið­un­andi sam­göngur er stór þáttur í þeirri þróun. Með jarð­göngum stækkar atvinnu­svæði Seyð­is­fjarðar og nágranna­byggð­ar­laga. Forsenda sam­ein­ingar sveita­fé­laga eru bættar sam­göngur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár