Wikileaks: Íslenska lögreglan forvitnaðist um njósnaforrit fyrir síma hjá Hacking Team

Upp­ljóstr­un­ar­síðan Wikileaks hefur birt meira en milljón tölvu­pósta frá ítalska fyr­ir­tæk­inu Hacking Team. Fyr­ir­tækið sér­hæfir sig í njósn­a­for­rit fyrir tölvur og snjall­síma og er mjög umdeilt fyrir að fram­leiða for­rit sem gerir aðilum kleyft að rjúfa frið­helgi einka­lífs og brjóta á mann­rétt­indum fólks á net­inu.

Í tölu­vpóst­unum má finna sam­skipti milli rann­sókn­ar­lög­reglu­manns­ins Ragnars Ragn­ars­sonar hjá tölvu­rann­sókna- og raf­einda­deild lög­reglu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og starfs­manns Hacking Team, þar sem íslenska lög­reglan spyrst fyrir um njósn­a­for­rit fyrir snjall­síma. Reykja­vík Grapevine greindi fyrstur íslenskra fjöl­miðla frá mál­inu.

Tölvu­pósts­sam­skiptin eru frá árinu 2011, en sam­kvæmt gögn­unum frá Wikileaks hófust þau þegar starfs­maður Hacking Team sendi íslenska rann­sókn­ar­lög­reglu­mann­inum tölvu­póst í lok maí það ár, þar sem hann greinir frá því að fyr­ir­tækið muni taka þátt í sölu­sýn­ingu.

Í tölvu­póst­inum greinir starfs­mað­ur­inn frá því að fyr­ir­tækið muni kynna nýtt njósn­a­for­rit fyrir PC-tölvur og snjall­síma á sýn­ing­unni, sem geti fylgst leynt með sam­skiptum meðal ann­ars í gegnum Skype og MSN, tekið afrit af skrám, ljós­myndum og virkjað hljóð­nema til að hlera úr vasa. Forritið er kallað RCS, eða Remote Control System.

Nokkrum dögum síðar sendi íslenski rann­sókn­ar­lög­reglu­maður tölvu­póst á starfs­mann Hacking Team og óskar frek­ari upp­lýs­inga um lausnir fyr­ir­tæk­is­ins til að fylgj­ast með notkun snjall­síma. Starfs­mað­ur­inn sendir þá lög­reglu­mann­inum tölvu­póst þar sem hann til­greinir að RSC virki til að „njósna“ um flestar gerðir snjall­síma.

Svarið hefur greini­lega ekki verið full­nægj­andi því að lög­reglu­mað­ur­inn sendir starfs­manni Hacking Team aftur tölvu­póst og spyr: „Ég er að leita eftir ítar­legri upp­lýs­ingum, sér­stak­lega er varða lausnir fyrir snjall­síma, verð o.s.frv. Getur far­síma­kerfið náð voip (Voice Over Internet Protocol) sam­skiptum?“

VoIP eru meðal ann­ars síma­sam­skipti manna á milli á net­inu, eins og til dæmis í gegnum for­rit eins og Skype.

Í svari starfs­manns Hacking Team við fyr­ir­spurn íslenska rann­sókn­ar­lög­reglu­manns­ins kemur fram að ekki sé hægt að hlera VoIP sam­skipti, en fyr­ir­tækið geti mögu­lega unnið slíka lausn sé þess óskað. Þá óskar starfs­mað­ur­inn eftir því að lög­reglu­mað­ur­inn sendi sér örygg­is­kóða óski hann eftir frek­ari upp­lýs­ingum. „Eins og þú getur ímyndað þér þá yrðu gögnin sem ég myndi senda þér mjög við­kvæm,“ eins og segir í tölvu­póst­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár