Kex hostel og gömul hús ekki rifin - Sextán til átján hæða turn rís við Skúlagötu

Umhverfis- og skipu­lags­ráðs Reykja­vík­ur­borgar lagði í gær­dag fram bókun þar sem lagt er til að gild­andi deiliskipu­lag á svæð­inu milli Lauga­vegs og Skúla­götu, Vita­stígs og Bar­óns­stígs verði numið úr gildi. Gamla deiliskipu­lagið gerir ráð fyrir stór­felldu nið­ur­rifi gam­allla timb­ur­húsa við Laugaveg og Hverf­is­götu og á bak­lóðum við Vitastíg. Nýja til­laga meiri­hlut­ans, sem vísað er til borg­ar­stjórnar, kveður á um að flest hús­anna haldi sér. Í stað þriggja 15 hæða turna við Skúla­götu áður er nú gert ráð fyrir einum 18 hæða turni. Þá er fallið frá heim­ilt til að rífa niður Skúla­götu 28, þar sem gisti­heim­ilið Kex er til húsa, og þess í stað veitt heim­ild til að byggja tvær hæðir ofan á húsið. Fulltrúi Bjartrar fram­tíðar, Magnea Guð­munds­dóttir, sat hjá við afgreiðslu bók­un­ar­innar.

„Nýja til­lagan kveður á um að flest þess­ara húsa haldi sér auk þess sem lögð er sér­stök áhersla á að styrkja timb­ur­húsa­þyrp­ingu við Vitastíg og tengja hana, með nýjum stíg, við Laugaveg, Hverf­is­götu og Bjarna­borg,“ segir í bók­un­inni. Þrátt fyrir að til­lagan geri ráð fyrir átján hæða turni þá er lagst gegn því í bók­un­inni og sagt að hann ætti að vera sextán hæðir að hámarki. „Við teljum að Skipu­lags­til­lagan sé mun betri en gild­andi deiliskipu­lag. Engu að síður teljum við að bygg­ing­ar­magn við Skúla­götu sé of mikið. Við leggj­umst gegn því að turn­inn verði 18 hæðir og teljum að hann eigi að vera 16 hæðir að hámarki og ekki meira en 60 metrar á hæð frá sjó.

Við teljum enn­fremur mjög mik­il­vægt að nokkrar arki­tekta­stofur, verði fengnar til að hanna bygg­ing­ar­reit­ina á svæð­inu til að ýta undir fjöl­breyti­leika og mis­mun­andi byggða­mynstur á ólíkum og mis­gömlum reitum.

Við teljum einnig nauð­syn­legt að tryggt verði að húsin milli Hverf­is­götu og Laugvegs verði íbúð­ar­hús og einnig húsin sem standa norð­an­megin við Hverf­is­götu og stöll­uðu húsin neðst við Vitastíg. Við teljum hins vegar eðli­legt að hafa meiri sveigj­an­leika í nýt­ingu hús­anna við Skúla­götu,“ segir í bók­un­inni.

Sat hjá - Borgin bundin fyrri ákvörðunum

Fulltrúi Bjartar fram­tíðar, Magnea Guð­munds­dóttir arki­tekt, sat hjá við afgreiðsl­una og bók­aði meðal ann­ars að ákjós­an­legra hefði verið að draga meiri lær­dóm af eldra skipu­lagi við Skúla­götu, þar sem háir turnar loka inni eldri byggð frá sjáv­ar­síð­unni og taki ekki til­lit til sam­spils byggðar og lands­lags þar fyrir. „Gríð­ar­legt bygg­ing­ar­magn leiðir af sér djúpa kroppa þar sem erfitt er að koma dags­ljósi að bæði í innri og ytri rýmum og dregur veru­lega úr gæðum þeirra. Hægt hefði verið að draga úr þessum áhrifum með því að dreifa betur bygg­inga­magni beggja vegna Hverf­is­götu,“ segir í bókun hennar.

Í sam­tali við Kjarnann segir Magnea að boð­aðar breyt­ingar á skipu­lagi svæð­is­ins séu að mörgu leyti góðar. Það sé hins vegar hennar mat að bygg­ing­ar­magnið á Skúla­götu sé enn of mikið. Því hafi hún ákveðið að sitja hjá en þar sem margt gott felist í breytungum þá hafi hún ekki kosið á móti bókun ráðs­ins. Hún gagn­rýnir það að engin fyrn­ing­ar­á­kvæði séu til staðar þannig að skipu­lags­ráð sé ekki bundið fyrri ákvörð­unum um bygg­ing­ar­magn, eins og raunin er í dag. „Við sitjum uppi með eld­gam­alt skipu­lag. Það voru allt aðrar hug­myndir uppi fyrir um tíu árum síðan, þegar það átti að bjarga mið­borg­inni með því að byggja þarna versl­un­ar­mið­stöð. Þau sjón­ar­mið eru ekki lengur gild. Samt sitjum við uppi með þetta bygg­ing­ar­magn, sem er slæmt,“ segir Magnea.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár