Kaupþing upplýsir ekki hver greiðir fyrir málsvörn Jóhannesar Rúnars

Slita­stjórn Kaup­þings vill ekki upp­lýsa um hvort hún greiði fyrir málsvörn Jóhann­esar Rúnars Jóhann­es­sonar, for­manns slita­stjórn­ar­innar, í máli Vincent Tchenguiz gegn honum fyrir breskum dóm­stólum. „Kaupþing hefur ekki í hyggju að veita fjöl­miðlum upp­lýs­ingar um það hvernig Jóhannes Rúnar fjár­magnar vörn sína í téðu máli,“ segir í skrif­legu svari frá Kaup­þingi við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Kaup­sýslu­mað­ur­inn Vincent Tchenguiz stefndi slita­stjórn Kaup­þings, end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tæk­inu Grant Thornton, tveimur starfs­mönnum Grant Thornton og Jóhann­esi Rúnari í des­em­ber síð­ast­liðnum og krefst 2,2 millj­arða punda í skaða­bætur, eða um 450 millj­arða króna. Tchenguiz, sem var stór við­skipta­vinur Kaup­þings fyrir hrun, telur þessa aðila hafa lagt á ráðin, haft frum­kvæði að og tekið þátt í rann­sókn bresku efna­hags­brota­deild­ar­innar Special Fraud Office (SFO), á honum og fyr­ir­tækjum í hans eigu. Þetta hafi leitt til þess að hann var hand­tek­inn á heim­ili sínu í mars 2011 og leitað var á skrif­stofu hans og í fyr­ir­tækjum í hans eigu.


Um síð­ustu mán­að­ar­mót hafn­aði breskur dóm­stóll kröfum Jóhann­esar Rúnars Jóhann­es­sonar og slita­stjórn­ar­innar um að þar­lendir dóm­stólar hafi ekki lög­sögu í mál­inu. Rúnar vildi að málið yrði tekið fyrir á Íslandi þar sem ein­ungis íslenskir dóm­stólar hefðu lög­sögu yfir upp­gjöri slita­bús Kaup­þings, en af því verður ekki. Dóm­stóll­inn telur málið varða atburði sem áttu sér stað á breskri grundu og því verði þeir teknir fyrir af bresku rétt­ar­kerfi. Hins vegar er við­ur­kennt að breskir dóm­stólar hafi ekki lög­sögu yfir slita­búi Kaup­þings enda geri íslensk gjald­þrota­lög ráð fyrir því að íslenskir dóm­stólar hafi einir lög­sögu yfir þeim.


Ítarlega frétta­skýr­ingu Kjarnans um málið má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár