Bílastæðasjóður tvöfaldar sektir - Tíu þúsund krónur fyrir að leggja ólöglega

Þann 1. ágúst næst­kom­andi munu stöðu­brots­gjöld Bíla­stæða­sjóðs Reykja­víkur tvö­fald­ast. Sekt vegna lagn­ingar bif­reiðar í stæði fyrir hreyfi­haml­aða án heim­ildar verður tutt­ugu þús­und krónur eftir hækkun og stöðv­un­ar­brota­gjöld vegna ann­arra stöðu­brota verða tíu þús­und krónur, sam­kvæmt aug­lýs­ingu á vef­síðu Bíla­stæða­sjóðs. Önnur stöðv­un­ar­brot eru til dæmis vegna lagn­ingar bif­reiðar á gang­stétt, gang­braut, vega­mótum, í stæði fyrir hóp­bif­reiðar eða þar sem umferð­ar­merki gefur til kynna bann við lagn­ingu eða stöðvun bif­reiðar.

Stöðv­un­ar­brota­gjöld Bíla­stæða­sjóðs eru í dag fimm þús­und krónur og tíu þús­und krónur ef lagt er í stæði fyrir hreyfi­haml­aða án heim­ildar.

Veittur er 1.100 króna afsláttur ef greitt er í banka­stofnun eða heima­banka innan þriggja virkra dgaa frá álagn­ingu gjalds­ins. Gjald sem er ógreitt 14 dögum frá álagn­ingu hækkar um 50 pró­sent og sé það ógreitt 28 dögum eftir álagn­ingu hækkar það um 100 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár