Íslendingar á faraldsfæti: Utanlandsferðum fjölgar

Það er ekki aðeins fjöldi ferða­manna á Íslandi sem hefur tekið stökk á þessu ári, því íslenskum ferða­mönnum erlendis hefur einnig fjölgað, sam­kvæmt tölum Ferða­mála­stofu um utan­lands­ferðir Íslend­inga. Í síð­asta mán­uði voru brott­farir Íslend­inga um Leifs­stöð tæp­lega 48 þús­und tals­ins, eða um 6.600 fleiri en í júní 2014. Eftir hraða fækkun utan­lands­ferða lands­manna í kjöl­far efna­hag­skrepp­unnar, þá fjölgar þeim nú hratt á nýjan leik. Það sem af er ári hafa 208.535 Íslend­ingar farið utan, eða 23.700 fleiri en á sama tíma­bili í fyrra. Júní og júlí eru vin­sæl­ustu ferða­mán­uðir Íslend­inga.


Grafið hér að ofan sýnir fjölda brott­fara í júní­mán­uði ár hvert frá 2004 til 2015. Þegar mest lét árið 2007 fóru nærri 55 þús­und Íslend­ingar utan í júní en minnst fóru ein­ungis rúm­lega 24 þús­und manns í sama mán­uði 2009.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár