Íslenska ríkið sýknað af kröfum fyrrum forstjóra Straums

Íslenska ríkið var í dag sýknað í hér­aðs­dómi Reykja­víkur af kröfum Þórðar Más Jóhann­es­sonar, fyrrum for­stjóra Straums hf. Þórður Már krafð­ist þess fyrir dómi að tekju­skatts- og útsvars­stofn hans vegna skatt­árs­ins 2007 yrði lækk­aður um tæpar 600 millj­ónir króna. Málið snérist um hvort skatt­leggja ætti hagnað af hluta­bréfa­við­skiptum Þórðar Más sem fjár­magnstekjur eða hlunn­indi starfs­manns.

Upphaf máls­ins má rekja til þess að á árunum 2004 og 2005 gerði Þórður Már tvo samn­inga við Straum í nafni fjár­fest­inga­fé­lags­ins Brekku ehf. um starfstengd kaup á hluta­bréfum í Straumi. Með fyrri samn­ingnum keypti Þórður Már hluta­bréf fyrir 327 millj­ónir króna og með seinni samn­ingnum kepti hann hluta­bréf í Straumi fyrir 1.350 millj­ónir króna. Samhliða var gerður samn­ingur um skil­yrtan kaup­rétt Straums auk þess sem Íslands­banki fjár­magn­aði að öllu leyti kaupin. Brekka, félag Þórðar Más, var með samn­ingum við Straum tryggt fyrir lækkun á mark­aðs­verði bréf­anna en Straumi var skylt að kaupa bréfin til baka á að minnsta kosti upp­haf­legi sölu­verði.


Yfir­skatta­nefnd úrskurð­aði árið 2013 á að með samn­ingum hafi Straumur veitt Þórði Má starfstengd hlunn­indi. Hagnað Brekku af við­skipt­unum ætti því að skatt­leggja sem launa­tengd hlunn­indi starfs­manns en ekki sem fjár­magnstekjur. Þessu mót­mæli for­stjór­inn fyrr­ver­andi fyrir hér­aðs­dómi, en honum var sagt upp störfum árið 2006. Þá seldi hann hluta­bréfin á mark­aði og inn­leysti 810 millj­óna króna sölu­hagnað.


Hér­aðs­dómur komst að þeirri nið­ur­stöðu að úrskurður yfir­skatta­nefndar, um að tekjur Brekku hafi átt að skil­greina sem skatt­skyld hlunn­indi starfs­mann. Íslenska ríkið var því sýknað af kröfum Þórðar Más um að lækka ætti tekju­skatts- og útsvars­stofn hans vegna gjald­árs­ins 2007 um nærri 600 millj­ónir króna. Málið dæmdu Þórður Clausen Þórð­ar­son hér­aðs­dóm­ari og með­dóm­end­urnir Ásmundur G. Vil­hjálms­son aðjúnkt og Hersir Sig­ur­geirs­son dós­ent.


Dómur hér­aðs­dóms.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár