Lögreglustjóri mátti ekki víkja Gunnari Scheving tímabundið frá störfum vegna LÖKE-málsins

Sér­skipuð nefnd um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins telur að Stefáni Eiríks­syni, þáver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, hafi ekki verið rétt að víkja lög­reglu­mann­inum Gunnari Scheving Thor­steins­syni tíma­bundið frá störfum, eftir að Gunnar var ákærður í LÖKE-mál­inu svo­kall­aða.

Þetta kemur fram í álits­gerð nefnd­ar­innar, sem Kjarninn hefur undir höndum, en nefndin klofn­aði í áliti sínu. Einn nefnd­ar­maður af þremur, lög­fræð­ing­ur­inn Helgi Valberg Jensson, skil­aði sér­á­liti þar sem hann telur að ákvörðun lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hafi verið rétt­mæt.

Háttsemin ekki fullnægjandi grundvöllur


Í nið­ur­stöðu meiri­hlut­ans segir að lög­reglu­stjóra hafi ekki verið rétt að veita Gunnari Scheving lausn frá störfum tíma­bundið á grund­velli starfs­manna­laga. „Er það því álit nefnd­ar­innar að hátt­semi sú sem Gunnar var grun­aður um hafi ekki verið full­nægj­andi grund­völlur ákvörð­un­ar­innar og þar með hafi ekki verið upp­fyllt skil­yrði 2. málsgr. 3. mgr. 26. gr. starfs­manna­laga,“ eins og segir orð­rétt í álits­gerð­inni. Undir nið­ur­stöð­una skrifa lög­fræð­ing­arnir Kristín Bene­dikts­dóttir, sem jafn­framt var for­maður nefnd­ar­innar, og Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, sem var til­nefnd af heild­ar­sam­tökum rík­is­starfs­manna.

Gunnar Scheving Thor­steins­son var ákærður um að fletta upp nöfnum tuga kvenna í mála­skrá lög­reglu, svoköll­uðu LÖKE-kerfi, án þess að það tengd­ist störfum hans sem lög­reglu­maður. Þá var hann sak­aður um að miðla per­sónu­upp­lýs­ingum sem leynt áttu að fara til þriðja aðila. Ákæru­valdið féll frá veiga­mesta ákæru­liðnum vegna ágalla á rann­sókn máls­ins og Gunnar var síðar sýkn­aður af þeim veiga­minni í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Gunnar hefur krafið lög­reglu­stjóra­emb­ættið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um bætur vegna máls­með­ferð­ar­innar.

Góð niðurstaða


Garðar St. Ólafsson, lög­maður Gunnars, fagnar nið­ur­stöðu nefndar um starfs­manna­lög. „Fyrst og fremst er þetta mik­ill sið­ferð­is­legur sigur. Það er ólýs­an­legur léttir fyrir skjól­stæð­ing minn að við­ur­kennt sé opin­ber­lega að hann hafi verið beittur rang­læti. Þá er þetta auð­vitað mjög góð nið­ur­staða fyrir bóta­kröfu hans. Þessi nið­ur­staða er enn frek­ari hvatn­ing fyrir rík­is­lög­mann og ráðu­neyti að bjóða honum ásætt­an­legar bætur. Ef ekki næst sam­komu­lag um það, þá er þetta sterk rök­semd fyrir okkur þegar bóta­mál kemur fyrir dóm,“ segir Garðar St. Ólafsson í sam­tali við Kjarnann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár