Hilmar Björnsson ráðinn íþróttastjóri hjá RÚV - Einar Örn hættir í sátt

Hilmar Björns­son, fyrr­ver­andi sjón­varps­stjóri Sýnar og dag­skrár­stjóri Skjás eins, hefur verið ráð­inn íþrótta­stjóri RÚV. Hilmar tekur við stöð­unni af Einari Erni Jónssyni, íþrótta­f­rétta­manni, sem hefur gegnt henni síðan í sept­em­ber eða síðan Kristín H. Hálf­dán­ar­dóttir lét af störfum hjá RÚV. Hilmar var ráð­inn án aug­lýs­ingar.

Skarp­héð­inn Guð­munds­son, dag­skrár­stjóri Sjón­varps­ins, til­kynnti starfs­mönnum um ráðn­ing­una á dög­unum í tölvu­pósti, sem Kjarninn hefur undir höndum.

Einar Örn aftur af fullum krafti í íþróttirnar


Þar segir: „Eins og ein­hver ykkar hafa nú þegar kom­ist á snoðir um þá standa fyrir dyrum breyt­ingar hjá íþrótta­deild. Nú í ágúst tekur Hilmar Björns­son við af Einari Erni Jónssyni sem íþrótta­stjóri. Þá mun Einar Örn á ný ná að ein­beita sér af fullum krafti að íþrótta­f­réttum og íþrótta­tengdri dag­skrár­gerð í öllum miðlum okkar - sem eru frá­bærar fréttir.“

Hilmar ætti að vera flestum hnútum kunn­ugur á RÚV, en hann hefur komið að nokkrum stórum verk­efnum hjá félag­inu að und­an­förnu. Nægir þar að nefna HM karla 2014 í fót­bolta, HM karla 2015 í hand­bolta, þátta­röð­ina Hand­boltalið Íslands og HM kvenna 2015 í fót­bolta. Hann vinnur nú að þátta­röð um karla­lands­lið Íslands í körfu­bolta, sem tekin verður til sýn­inga innan tíðar.

Stígur sáttur til hliðar


„Hilmar er mik­ill reynslu­bolti. Var áður sjón­varps­stjóri Sýnar, dag­skrár­stjóri Skjás eins og á að baki langan feril sem pródúsent og dag­skrár­gerð­ar­maður - auk þess að hafa verið þokka­leg­asti fót­bolta­maður fyrir merki­lega löngu síðan. Hér er því á ferð frá­bær liðs­styrkur sem við bjóðum vel­kom­inn í hóp­inn,“ skrifar Skarp­héð­inn Guð­munds­son í áður­nefndum tölvu­pósti til starfs­manna.

Í sam­tali við Kjarnann segir Einar Örn Jónsson að hann láti sáttur af störfum sem íþrótta­stjóri RÚV. Staðan hafi lent í fang­inu á honum eftir að fyrri íþrótta­stjóri hætti störfum, og hann hafi ekki sóst eftir að gegna henni til fram­búðar. Hann hafi viljað losna úr starf­inu og bent RÚV á Hilmar sem heppi­legan arf­taka. „Ég hef lít­inn metnað fyrir því að stýra, mitt fag og minn metn­aður er frétta- og dag­skrár­gerð,“ segir Einar Örn í sam­tali við Kjarnann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár