Vigdís Hauksdóttir spyr ráðherra um 110 prósent leiðina

Vigdís Hauks­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­maður fjár­laga­nefndar, lagði í dag fram fyr­ir­spurn til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um nið­ur­færslu hús­næð­is­lána sam­kvæmt 110 pró­sent leið­inni svoköll­uðu, sem fram­kvæmd var í tíð rík­is­stjórnar Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna. Vigdís spyr meðal ann­ars um hversu miklar afskriftir lána hafi verið að með­al­tali og hversu margir hafi fengið afskrif­aðar skuldir eftir upp­hæðum.

Fyr­ir­spurn Vigdísar er í tíu liðum. Hún spyr meðal ann­ars hver kostn­aður hafi verið af leið­inni fyrir rík­is­sjóð ann­ars vegar og Íbúða­lána­sjóð hins vegar, hver kostn­aður Umboðs­manns skuld­ara hafi verið í tengslum við 110 pró­sent leið­ina og hvernig hóp­ur­inn sem fékk úrlausn mála skipt­ist eftir mán­að­ar­tekjum.

Þá spyr hún hversu margir ein­stak­lingar sem fóru 110 pró­sent leið­ina hafi borgað auð­legð­ar­skatt af eigum sínum eftir afskriftir á meðan skatt­ur­inn var inn­heimtur, hvernig afskriftir skipt­ust eftir lands­hlutum og hvernig afskriftir skipt­ust eftir aldri.

Vigdís var ekki eini þing­mað­ur­inn sem óskaði eftir upp­lýs­ingum um skulda­mál og afskriftir á Alþingi í dag. Kjarninn greindi í dag frá beiðni tíu þing­manna stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna um skýrslu um nið­ur­færslu verð­tryggðra lána, hina svoköll­uðu leið­rétt­ingu, þar sem nýlega útkomin skýrsla Bjarna Bene­dikts­sonar svar­aði ekki öllum spurn­ingum sem hún átti að gera, að mati þing­mann­anna. Þá lagði Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, einnig fram fyr­ir­spurn í dag til fjár­mála- og efna­hags­ráð­gjafa um skulda­upp­gjör ein­stak­linga, félaga og fyr­ir­tækja við fjár­mála­stofn­anir í meiri­hluta­eigu rík­is­ins. Hann spyr meðal ann­ars um hvernig staðið hafi verið að setn­ingu reglna varð­andi skulda­upp­gjör, hvort tryggt hafi verið að jafn­ræð­is­reglu var fylgt og hvort ráð­herra telji að efn­is­legar ástæður og rétt­læt­is­rök séu fyrir því að gerði verði sér­stök úttekt á vinnu­brögðum fjár­mála­stofn­ana í meiri­hluta­eigu rík­is­ins varð­andi skulda­upp­gjör ein­stak­linga, fyr­ir­tækja og félaga á árunum 2009 til 2013.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár