Skortur á efnislegum gæðum sá fimmti minnsti á Íslandi

Hlutfall fólks sem skorti efn­is­leg gæði á Íslandi lækk­aði úr 6,6 pró­sent í 5,5 pró­sent milli áranna 2013 og 2014, sam­kvæmt nýbirtum nið­ur­stöðum úr lífs­kjara­rann­sókn Hag­stof­unnar. Eftir atvinnu­stöðu þá skera öryrkjar sig úr en árið 2014 skorti 23 pró­sent þeirra efn­is­leg gæði. Hlut­fallið var mun lægra meðal atvinnu­lausra, eða 12,5 pró­sent, og enn lægra á meðal ann­arra hópa. Skortur á efn­is­legum gæðum er tíð­ari meðal ein­stæðra for­eldra og barna þeirra en á meðal ann­arra heim­ils­gerða. Árið 2014 skorti 20,3 pró­sent þessa hóps efn­is­leg gæði. Til sam­an­burðar má nefna að hlut­fallið var 4,6 pró­sent á meðal þeirra sem bjuggu á heim­ilum tveggja full­orð­inna og tveggja barna. Þá var hlut­fallið nokkuð hátt á meðal ein­stak­linga undir 65 ára aldri sem búa einir á heim­ili, eða 15,1 pró­sent.

Þeir sem telj­ast við skort á efn­is­legum gæðum eru skil­greindir þannig að þeir búi á heim­ili þar sem þrennt af eft­ir­far­andi á við:


1. Hefur lent í van­skilum hús­næð­is­lána eða ann­arra lána vegna fjár­skorts á síð­ast­liðnum 12 mán­uðum.


2. Hefur ekki efni á að fara árlega í viku­langt frí með fjöl­skyld­unni.


3. Hefur ekki efni á kjöti, fiski eða sam­bæri­legri græn­met­is­mál­tíð að minnsta kosti annan hvern dag.


4. Getur ekki mætt óvæntum útgjöldum.


5. Hefur hvorki efni á heima­síma né far­síma.


6. Hefur ekki efni á sjón­varps­tæki.


7. Hefur ekki efni á þvotta­vél.


8. Hefur ekki efni á bíl.


9. Hefur ekki efni á að halda hús­næð­inu nægj­an­lega heitu.

Fimmta lægsta hlutfallið í Evrópu

Í sam­an­burði við önnur ríki Evrópu er Ísland með fimmta lægsta hlut­fallið á meðal þeirra landa sem taka þátt í evr­pósku lífs­kjara­rann­sókn­inni. Lægst var hlut­fallið í Sviss, þar sem það er 3,7 pró­sent, og eftir koma Svíþjóð, Noregur og Lúx­em­borg. Hlut­fallið er hæst í Búlgaríu, 58 pró­sent, og síðan Makedóníu þar sem hlut­fallið er 56,3 pró­sent. Í skýrslu Hag­stof­unnar er bent á að Norð­ur­löndin koma almennt vel út úr mæl­ing­unni.



Í skýrslu Hag­stof­unnar er þró­unin einnig borin saman milli landa sem lentu illa í krepp­unni. Borin er saman þró­unin frá 2004 til 2013 á Írlandi, Íslandi, Spáni, í Grikk­landi og Eist­landi.



„Á tíma­bil­inu 2004–2007 er hlut­fallið sem skortir efn­is­leg gæði nokkuð stöðugt á Íslandi, Írlandi og Spáni en ívið hærra í tveimur síð­ar­nefnd­ari lönd­unum. Árið 2007 skorti 7,4% efn­is­leg gæði á Íslandi, 10,3% í Írlandi og 14,4% á Spáni. Á milli 2007 og 2008 lækk­aði hlut­fallið á Íslandi en hækk­aði svo eftir það fram til 2011 en helst svo nokkuð stöðugt. Þróunin er með öðrum hætti á Írlandi, en hlut­fallið byrjar að hækka eftir 2007 og nær hámarki árið 2012 í 24,9% en lækkar svo lít­il­lega eftir það. Á milli 2007 og 2012 hækk­aði tíðni skorts á efn­is­legum gæðum í Írlandi þannig um 14,6 pró­sentu­stig eða 141,7 pró­sent. Á Íslandi var hlut­fallið hins­vegar ekki hærra eftir hrun en það hafði verið á árunum 2004-2007, eins og áður hefur komið fram. Á Spáni hækk­aði hlut­fallið eftir 2008, úr 10,8%, og var hæst árið 2013, eða 16,9%, sem er mun hóf­legri hækkun en á Írlandi.


Þróunin er á annan veg í Grikk­landi og Eist­landi. Hlut­fallið sem skorti efn­is­leg gæði lækk­aði í báðum löndum á milli 2005 og 2008 en þó mun meira í Eist­landi en í Grikk­landi. Árið 2005 var hlut­fallið svipað í báðum löndum, eða 26,6% í Eist­landi og 26,3% í Grikk­landi. Árið 2008 var hlut­fallið komið niður í 21,8% í Grikk­landi en 12,4% í Eist­landi. Eftir það hækk­aði hlut­fallið í báðum löndum. Í Grikk­landi hækk­aði hlut­fallið hægt á milli 2008 og 2010, úr 21,8% í 24,1% en mun hraðar eftir það og árið 2013 skorti 37,3% efn­is­leg gæði í Grikk­landi. Í Eist­landi hækk­aði hlut­fallið mun hraðar á milli 2008 og 2010, úr 12,4% í 23,3% en lækk­aði svo aftur eftir það og árið 2014 skorti 19,4% íbúa Eist­lands efn­is­leg gæði,“ segir í skýrslu Hag­stof­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár